Morgunn - 01.06.1941, Side 24
16
M 0 R G U N N
Skoðun mín er sú, að þeir séu enn á meðal vor, um-
hverfis oss, frekar í því, sem vér nefnum eter rúmsins
en efninu, að samband við þá sé mögulegt, og að einfaldar
sálir geti fengið huggun af innblásnum skynjunum sínum
og einfaldri reynslu, án þess að láta hræðast af þeim
hindrunum, sem hin mikla einbeiting mannkynsins að
efnislegri tækni síðustu tvær til þrjár aldirnar hefir lagt
á leið þeirra.
Vér verðum að muna, að vér erum ódauðlegir andar, sem
bundizt hafa hinu jarðneska efni að eins um stundarsakir.
Ef til vill er það í gegnum þessa líkamlegu takmörkun og
einangrun, að vér verðum einstaklingar og ávinnum oss
persónuleika, sem síðar er fær um að laga sig eftir að-
stæðum annarar veraldar, eins og líffræðin veit að allar
vitsmunum gæddar verur hafa hæfileika til“.
Á jörðinni hlaut Sir Oliver Lodge frægð um fram flesta
menn aðra og þar þekktu hundruð milljóna nafn hans
og virtu það. Á æðri lífssviðum var nafn hans þekkt og
þar mun honum hafa verið fagnað, er hann kom heim eftir
nærri 90 ára dáðríkan jarðlífsdag.
Honum sé þökk fyrir hans mikla starf og lof sé guði,
sem gaf hann, því að jörðin er auðugri fyrir það, að hann
varð hennar sonur.
Jón Auðuns.