Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 19
MORGUNN
11
þessa hlið rannsókna sinna, en menn eru æ meir að hneigj-
ast til þeirrar skoðunar, að með rannsóknunum á eternum
hafi honum tekizt að legg.ja grundvöllinn að hinum vís-
indalega spíritisma framtíðarinnar, öllum öðrum mönn-
um fremur, því að þar hafi hann uppgötvað hinn „semi“-
jarðneska tengilið anda og efnis. Þessar rannsóknir hans
á eternum eru að áliti dómbærra manna svo merkilegar,
að það muni bíða ókominna tíma að meta til fulls hina
geisilegu þýðingu þeirra fyrir vísindin, eðlisfræðina jafnt
sem andleg vísindi, en eins og ég hefi áður getið, stað-
hæfði Sir Oliver að, að þessum rannsóknum hefði unnið
með sér Frederick Myers og Raymond hinum megin tjalds-
ins. Hann kvaðst hafa verið í stöðugri samvinnu við þá.
Með Myers og honum var mikil vinátta og nokkurt sam-
starf, meðan Meyers naut við, og í sumum bókum sín-
um gerir Sir Oliver þess grein, hvernig reynsla sín sér
að staðfesta æ betur og betur tilgátu Myers um „The
Subliminal Self“, nefnilega þá tilgátu, að sálin, sem birt-
ist og starfar í hinum jarðneska líkama, sé ekki nema lítið
brot af voru raunverulega sjálfi. 1 bók sinni ,,Making of
Man“ útlistar hann þessa kenning af miklum skarpleik
og andríki, ekki sízt, þegar hann heimfærir hana upp á
holdtekju Krists.
Um aðrar hliðar á sálarrannsóknastarfi Sir Olivers
Lodge er oft búið að minnast áður á félagsfundum vor-
um, þess vegna mun ég ekki gera það frekar í þetta sinn.
Enda er það miklu meira freistandi að láta hann tala, en
tala sjálfur, og eigin orð hans lýsa honum betur en ég
á kost á að gera. Þess vegna er mér í kvöld ljúfara að
vitna til orða hans en að tala sjálfur.
Árið 1932 gaf hann út sjálfsævisögu sína, og í niður-
lagsorðum hennar segir hann svo:
„Þegar ég lít um öxl yfir jarðlíf mitt, sem ég geri nú
ráð fyrir að bráðum muni á enda, langar mig að draga
saman höfuð innihald þess og rekja. ef unnt væri, linuna,
sem það hefir þróast eftir. Eitt hefi ég ekki gert, hvort