Morgunn - 01.06.1941, Síða 97
MORGUNN
89
þeirra meðal höfðingja og valdamanna veraldlegrar og
andlegrar stéttar. Viðureign hennar við þá og fleira minn-
ir á meistarann frá Nazaret, er óvinir hans vildu veiða
hann í orðum. Þetta gæti helzt líkzt skáldsögu, er tilfinn-
ingarík og hugsjónaauðug skáld gefa hugmyndum sínum
lausan taum. En þetta er allt sannir viðburðir og orðnir
eign veraldarsögunnar með sama hætti og önnur sögu-
vísindi, staðfest af samtíma skjölum og skilríkjum, sem
enn eru til, þótt einhverju væri glatað, er hatursmennina
renndi grun í smán sína. Konungurinn, sem hefði staðið
það næst að bjarga meynni, hreyfði ekki til þess hönd eða
fót, en naut árangursins af afrekum hennar í svalli og
bílífi.
Þessir fáu yfirborðsdrættir vona ég að nægi, til að vekja
löngun til að lesa bókina.
Höfundurinn er Leon Denis, dáinn 81 árs 1927, lærdóms
og gáfumaður og annar aðalbrautryðjandi spiritismans
á Frakklandi. Hann hafði og sálrænar gáfur og hafði
sjálfur samband við meyna.
Á íslenzku er bókin í vandaðri þýðing eptir ritstjóra
,,Morguns“, séra Jón Auðuns.
Kristinn Dciníelsson.
Dularfulli maðurinn.
Maurice Barbanell, ritstjóri blaðsins Psychic News,
fékk nýlega svolátandi símskeyti: „Það var alveg rétt hjá
frú I-Iughes. Dularfulli maðurinn“, og segir um það þessa
sögu:
Þegar ég var nýlega í Leeds hitti ég mann frá Jórvíkur
skíri, sem var byrjaður að rannsaka vandlega spíritism-
ann. Hann gætti þess svo vandlega, að enginn, sem riðinn