Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 95
M 0 R G U N N
87
til að svara, að Sálarrannsóknafélagið hafði til þess ekk-
ert vald fram yfir hvern annan, því að frúin starfaði ekki
á vegum þess, var aldrei meðlimur þess og virtist miklu
fremur forðast það á alla lund, nema hvað hún bauðst einu
sinni til að gefa meðlimum þess skyggnilýsingar, sem hún
gerði og fólki fannst upp og niður til um, enda vissi hún
fulíkomlega, að S. R. F. I. hefði ekki leyft henni þær
starfsaðferðir, sem hún tamdi sér, þegar hún var sjálf-
ráð um.
I Reykjavík hefir nokkuð á því borið, að fólk, sem e. t.
v. hefir einhverja sálræna hæfileika, hafi rekið starfsemi,
sem S. R. F. I. telur óheppilega og í fyllsta máta vafasama
fyrir málefnið. En það er nvorttveggja, að þetta fólk
stendur fyrir utan Sálarrannsóknafélagið, er algerlega
óháð því, og einnig að félagið hefir haft þá trú á dóm-
greind almennings, að slík starfsemi fái ekki aðsókn og
veslist þannig upp.
Annars eru miðjasvikin því miður bæði gamalt fyrir-
brigði og nýtt. í nýkomnum spíritistablöðum irá Englandi
skrifar ritstjórinn, Mr. Barbanell, um svik, sem nýlega
hafa komizt upp um enskan miðil, og tekur á honum heldur
óvægum tökum. Hann segír m. a. á þessa leið:
„Þetta mál Kenneths Hillberry er eitt versta svikamál,
sem upp hefir komizt um miðil. Því verður ekki neitað,
þótt margir kunni nú að rísa upp, er svik hans eru aug-
ljós, og benda á þær skýlausu sannanir, sem fengizt hafa
hjá honum og ekki er unnt að skýra sem svik. Sumir hafa
óskað þess, að þessum miðli væri gefið nýtt tækifæri. En
spíritisminn hefir ekkert rúm fyrir miöla, sem hafa
svikiö
Þessi yfirlýsing Bai'banells er í fullu samræmi við yfir-
lýsing ritstj, Morguns í sambandi við þetta mál: „Vandaða
miðla eða enga!“
Auk frú Láru fengu þessir dóm fyrir að hafa verið i
vitorði með henni um svikin : Þorbergur Gunnarsson fékt