Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 96
88
MORGUNN
6 mánaða fangelsi, en þeir Kristján Ingvar Kristjánsson
og Óskar Þórir Guðmundsson 4 mánaða fangelsi og er
dómur þeirra tveggja skilorðsbundinn.
I þiónustu æðri máttarvalda
Síðan síðasta hefti „Morguns“ kom út, hefir komið út
bók með þessu nafni, og þykir mér sem nú megi þetta hefti
ekki hlaupa svo af stokkunum, að þeirrar bókar sé ekki
að nokkru minnzt, og lesendum „Morguns" bent á hana. En
það verður þó ekki nema í örstuttu máli, enda ekki annars
þörf, því að ég tel víst, að hver lesandi „Morguns“ eða
aðrir, sem eitthvað sinna því málefni, sem hann er mál-
gagn fyrir, muni, þegar þeir vita um bókina, ekki leggjast
undir höfuð að fá sér og lesa hana sjálfa. Engan mun iðra
þess, því að svo ber hún af flestu, bæði að efni og sanana-
gildi fyrir þetta málefni, eða jafnast á við það bezta, sem
um það hefir verið prentað á íslenzku.
Hér skal því að eins í sem stytztu máli sagt frá því, að
þetta er hin undursamlega saga meyjarinnar frá Orleans,
sem allir kannast við, bóndastúlkunnar frakknesku, sem
17 ára gömul frelsaði föðurland sitt á 15. öld, þegar svo
var komið, að enginn mannlegur máttur virtist mega
bjarga frelsi þess.
Sagan er í senn bæði hrífandi fögur og átakanlega sorg-
leg. Annars vegar aðdáanleg afrek hinnar umkomulausu
meyjar, sem engin önnur skýring er hugsanleg á, en að
hún var frá upphafi leidd og styrkt af verum frá öðrum
heimi, var í þjónustu æðri máttarvalda. Frásagan um þetta
er heillandi. Hins vegar eru hin nístandi sorglegu og sví-
virðilegu afdrif, er þessi heilaga mær hlaut að lokum, að
vera brennd á báli fyir atbeina óvildar- og öfundarmanna,