Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 43
M 0 R G U N N
35
arfólkið liefði gert og nafn sitt væri Ruysdael. Þá var lögð
fyrir miðilinn áðurnefnd bók, sem einnig geymdi mynd
Ruysdales og var andamálarinn nú beðinn að athuga hana.
Hann svaraði, að eftirgerða myndin af sér í bókinni gæfi
all-góða hugmynd um, hvernig hann hefði litið út um þrí-
tugt. Því næ^t var honum bent á að í myndina, sem mál-
uð var í transinum, vantaði nokkrar „fígúrur“, sem voru
í frummyndinni. Hann kvaðst vita það, en þær væru ekki
eftir sig, heldur hefði vinur hans, sem var málari, bætt
þeim inn á málverkið. Þegar leitað var í æfisögu Ruys-
daels reyndist þetta nákvæmlega rétt.
Ég verð enn að bæta því við, að Duguid er gersamlega
ómenntaður í málaralist og er óbrotinn verkamaður, að
myndin var máluð í viðurvist nokkurra manna á að eins
fjórum klukkustundum, meðan miðillinn var með lokuð
augu, og að ennfremur var bundið fyrir augu hans nokkuð
af tímanum, eftir beiðni þeirra viðstaddra, sem voru sér-
lega tortryggnir. Miðillinn staðhæfir, að hann hafi áður
enga hugmynd haft um þetta málverk Ruysdaels og ekki
vitað, að málari með því nafni hafi nokkurn tíma verið til.
Það er engin ástæða til að vefengja þá fullyrðing hans“.
Þessi er frásögn hr. Colemans, sem að eins segir frá
staðreyndunum, eins og þær lágu fyrir. Síðar málaði Du-
guid margar myndir í transi, þótt ekki hafi þær verið svo
mai'gar, að hann hafi getað haldið heila sýningu á þeim,
eins og hollenzki málaramiðillinn Mansveld gerði. Mál-
Verkasýning hans var vissulega stórmerkur viðburður, og
leyfi ég mér enn að vitna til ummæla dr. Kröners í Berlín
um hana. Dr. Kröner, sem engan veginn vill fallast á
spiritistisku skýringuna, skoðaði sýningu Mansvelds ná-
kvæmlega og af þeirri gagnrýni, sem hann hafði mikla
Þekkingu til, og fullyrðir, að engum, sem vit hafi á mál-
aralist, geti til hugar komið, að þau málverk hafi einn
°g sami maðurinn málað, heldur a. m. k. tuttugu meist-
arar, sem í aðferðum, skaplyndi, viðfangsefnum og lær-
3*