Búfræðingurinn - 01.01.1938, Blaðsíða 160
156
BÚ FRÆÐIN GURINN
Búfræðingurinn mun verða sendur kaupendum sínum
nálægt fyrsta sumardegi. Hann óskar ykkur því öllum
gleðilegs sumars og gæfu í starfi ykkar.
Setjum okkur það markmið á livaða sviði sem er, að
vaxa í störfum oklcar og láta þau vaxa með okkur.
Með hugheilli kveðju.
Guðm. Jónsson.
r
Avarp til Hvanneyringa.
Eftir rúmlega eitl ár, eða vorið 1939, á Bændaskólinn á Hvann-
eyri 50 ára afmæli. í ráði er við það tækifæri að gefa út minningar-
rit um sögu og starf skólans í 50 ár. En jafnframt þeirri starfssögu
má telja það mikilsvert að fá sem gleggstar upplýsingar um nem-
endur skólans, eldri sem yngri og hvort sem þeir hafa útskrifast sem
búfræðingar af skólanum eða ekki. Mundi það geta orðið til fróðleiks
og ánægju fyrir ýmsa, að slik nemendaskrá yrði birt og mun það að
líkindum verða gert í fyrirhuguðu minningarriti og ef til vill í Bú-
fræðingnum, sem nemendafélagið Hvanneyringur hefir nú keypt
og mun gefa út á sinn kostnað. Viljum við um leið nota tækifærið til
Jiess að skora á alla Hvanneyringa að gerasl áskrifendur að Bú-
fræðingnum.
Til þess að nemendaskrá sú, sem að framan getur, verði nákvæm
og ábyggileg, Jmrfa upplýsingarnar hetzt að koma frá viðkomanda
sjálfum. Við viljum Jjví vinsamlega, en ákveðið, skora á alla Hvann-
eyringa, hvort sem þeir hafa stundað nám við Hvanneyrarskólann
í lengri eða skemmri tima, að senda sem fyrst eftirfaradi upplýs-
intfar um sig til Guðmundar Jónssonar kennara á Hvanneyri, sem
er ritstjóri Búfræðingsins og er að safna gögnum til sögu skólans:
1. Fulll nafn op heimilisfung og dvalaráir á skólanum.
2. Aðalstarf og tilil (bóndi, vinnumaður, kennari o. s. frv.) og
helzlu aukastörf.
Hvanneyringar! Við vonum, að lnð látið það ekki undir liöfuð
ieggjast að senda Jiessar upplýsingar. Þið viljið eflaust allir fá nöfn
ykkar í nemendaskránni með réttum upplýsingum, en frumskilyrði
Jiess er, að ]>ær komi frá ykkur sjúlfum, einnig frá ykkur, sem við und-
irritaðir þekkjum persónulega og eruð útskrifaðir á síðustu árum.
Með vinsemd og kærri kveðju.
Runólfur Sveinsson, Guðmnndur Jónsson,
Ilvanneyri. Hvanneyri.
Þorgils Gnðmundsson,
Reykholti.