Búfræðingurinn - 01.01.1938, Blaðsíða 162
158
B Ú F R Æ Ð I N G U R 1N N
Bænd as kól inn á Hvanneyri
starfar í tveimur deildum. Námstími er þrjú misseri,
Kenndar eru aðalgreinar búfræðinnar, bóklega og
verklega, auk nokkurra almennra námsgreina, á-
samt smíðum, söng og leikfimi. Nemendur hafa ó-
keypis fæði og þjónustu tvö siðari misserin og 100
kr. styrk að auki. Kennsla byrjar 15. október. Um-
sóknir sendist skólastjóra fyrir 1. sept., sem gefur
nánari upplýsingar ef óskað er.
Runólfur Sveinsson.
Fró Grænmetisverzlun ríkisins.
Til þess að kartöflur þær, sem Grænmetisverzlun ríkisins kaupir,
verái metnar sem góð. og gild söluvara, þurfa þær aá upp-
fylla eftirfarandi skilyrái:
1. Kartöflurnar verða að vera þurrar og hreinar. (AthAldrei má hreinsa kartöfl-
urnar með því að þvo þær eða bleyta).
2. Kartöflurnar eiga að vera sem jafnastar að útliti og stærð, Allar óvenjulega
stórar, vanslcapaðar, grænar og skaddaðar kartöflur verða að vera skildar frá.
Sömuleiðis frosnar kartöflur og sýktar.
3. Allt smælki þarf að vera skilið frá, þannig að kartöflur, sem ekki eru
meira en 35 millimetrar í þvermál nemi alls ekki meira en um 5°jo af vör-
unni, og að engar kartöflur séu minni en 25 millimetrar í þvermál.
4. Kartöflurnar eiga að afhendast í 50 kílóa pokum, sem verða að vera þurrir,
heilir og þrifalegir. Skal vera vandlega saumað fyrir pokana og gerð á horn
til að taka í, þegar þeir eru handleiknir.
5. Seljendur verða að láta fylgja kartöflunum greinilegar upplýsingar um, hvaða
afbrigði (tegund) þær séu. Ef um fleiri afbrigði er að ræða í sömu sendingu,
má ekki blanda þeim saman. Hvert afbrigði verður að vera vel sérmerkt, svo
hægt sé að greina á milli þeirra, án þess að opna pokana.
6. Auk þessa verða seljendur að gefa Grænmetisverzlun ríkisins aðrar upplýs-
ingar viðvíkjandi vörunni, eftir því sem óskað er, og verða má til þess að
upplýsa um heilbrigði kartaflanna, gæði og geymsluþol.