Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Blaðsíða 28
Eí'tir Guttorm J. Guttormsson
Skemtana minna skógarbirnir
Skæðir voru þeim gæfu kindum
Harmi og sorg á sálarlöndum,
Saklausum iskepnum í frjóvum högum.
Þeim, er fyrir því sauðfé sátu,
—Samt höfðu þeir á öðru að lifa—
Myrkviðarskjól iog skugga gáfu
Skrúðgrænar furur og bjarkarunnar.
Risu þeir upp á afturfótum,
Ef við fótatak nefndra kinda
Bærðist lyng eða lauf á anga;
Löngum höfðu þeir af þeim veðrið.
Nær þeir bráðina hugðust hremma,
Hvoftar opnuðust, skinu tennur,
Klærnar spruttu’ út úr loðnum leistum,
Lengdust fram, er þeir tóku stökkið.—
Langt og vítt, þegar leið á sumar,
Leituðu þeir inn um skóg að höllu
Tré, sem hafði’ upp með rótum rifnað,
Reist upp svörðinn, svo holt var undir.
Þangað komu þeir heim að hausti
Hárprúðir, svartir, með gulbleik trýnin,
Gljáandi, þvalan þykkan feldinn,
Þverhandar spik á hvorri síðu.
Skemtana minna skógarbirnir
Skríða nú undir rætur trésins,
Setjast þar að og sjúga hramminn,
Sofandi út minn lífsins vetur.
Bregðist mér von um að vori snemma,
Vakna munu þeir aldrei framar;
Hafa þá einir sig erft og jarðað,
Á sér sjálfum í hel sig lifað.