Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Side 122
TUTTUGASTA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
95
laginu 20 ára þjóðheillastarf, og óskum
þvi framtiðarblessunar.
Forsetar.
Þá las ritari þingbók fyrsta fundar, og
var hún samþykt athugasemdalaust, sam-
kvaemt tillögu Rósmundar Ámasonar, er
J. Húnfjörð studdi
Forseti dró athygli þingsins að því, að
herra Árni Helgason í Chicago, forseti
félagsins Vísir, vseri nú staddur í salnum,
og bað hann að ávarpa þingið. Mr.
Helgason flutti kveðjur frá félaginu “Vís-
ir” og skýrði frá störfum þess — félags-
lifi, fundarhöldum, samkomum og almenn'
um verkefnum meðal Islendinga í Chi-
cago. Erindið var flutt munnlega, og
þvi ekki hægt að birta það hér. En að
því var gerður hinn bezti rómur, og var
ræðumanni þakkaði með almennu lófa-
klappi.
Séra Jakob Jónsson gaf skýrslu fyrir
deildina “Fjallkonan” í Wynyard.
Skýrsla frá þjóðrælmisdeildinni
“Fjallkonunni” í Wynyard
Þjóðræknisdeildin “Fjallkonan” í Wyn-
yard hefir starfað með líkum hætti og
undanfarin ár. Fremur fáir fundir hafa
verið haldnir, en þó gerðar ákvarðanir um
Vnis mál, sem félagið og almenning hafa
varðað. Ekki hefir öllu verið í fram-
kvæmd komið, sem ráðgert var, en þó
hokkru.
Bókasafnið hefir aukist nokkuð á ár-
húi, og er all-mikið notað, bæði af mönn-
um í Wynyard og Mozart. Mr. ólafur
Hall hefir bókavörzlu, en Mr. Gunnar Jó-
hannsson annast innikaup bóka.
Islendingadagur var haldinn í Wjmyard,
svo sem venja hefir verið. I þetta sinn
var herra Jónas Jónsson alþingismaður
frá Islandi aðalræðumaður, og flutti hann
itarlegt erindi um Island og íslenzkt þjóð-
iif, sérstaklega framfarir síðustu ára-
tuga. Forseti Þjóðræknisfélagsins, Dr.
Högnvaldur Pétursson var í för með hon-
hui, ásamt frú sinni. Talaði hann einnig
hokkur orð. Annar gestur frá Islandi var
þar staddur, hr. Hjörtur Halldórsson
skáld, og lék hann einleik á píanó. — Að-
sókn að samkomunni var ágæt. Deildin
vill láta í ljósi þökk sína til þessara
manna, og telur sér það sæmd að hafa
átt, ásamt öðrum þjóðræknisdeildum,
þátt i heimsókn Jónasar Jónssonar ve’st-
ur um haf.
Hinn fyrsta desember 1938 var haldin
samkoma til minningar um tuttugu ára
afmæli íslenzks fullveldis,. Þjóðræknis-
deildin átti frumkvæðið að þvi, en ann-
ars var unnið að undirbúningi samkomunn-
ar af hóp manna og kvenna, án tillits til
þess, hvort þeir voru í félaginu eða ekki.
trtvarpið, sem fram fór þennan dag, frá
Reykjavík og Winnipeg, var tekið inn í
dagskrá skemtunarinnar. A borðum var
íslenzkur matur eingöngu. Var þar fjöl-
menni mikið saman komið.
Deildin átti þátt í stofnun yngri þjóð-
ræknisdeildar, sem sett var á laggimar,
og átti að starfa á svipuðum grundveili
•og félagið “Young Icelanders” í Winni-
peg. Forseti þess félags var kosinn Mr.
Ragnar Eggertsson.
Báðar deildirnar settu sameiginlega
nefnd á laggirnar, er vinna skyldi að
söfnun gamalla minja viðsvegar um bygð-
ina, og varð henni all-mikið ágengt. Eru
munir þeir afhentir á þessu þingi.
Af Islendingum, sem látist hafa á fé-
lagssvæðinu, hafa þessir verið meðlimir
deildarinnar á liðnu ári eða fyr:
1. Mr. Sigurjón Axdal.
2. Mrs. Guðrún Axdal, kona hans.
3. Mrs. Björg Axdal
4. Mrs. Guðrún Dalmann
•5. Mrs. Ingveldur Eyjólfsson
6. Mrs. Guðrún Ásmundsson
7. Mr. Guðmundur G. Goodman.
Mr. Guðmundur Goodmann hafði um
langt skeið verið ritari deildarinnar, og
átti mjög imikinn þátt í öllum félagsstörf'
um. Hann var ibókamaður mikill, og á-
nafnaði Þjóðræknisfélaginu mestan hluta
bókasafns síns. Kann deildin honum
þakkir fyrir það, og öllum þeim, sem
nefndir hafa verið, vill hún þakka sam-
starf á liðnum árum.
Jakob Jónsson, forseti
Sigurður Jónsson, ritari