Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Qupperneq 102
Alþý<ðua§K.álcii<B Valdimar Fálssora
EftJr séra Jakob Jónsson
Nýlega lézt í Foam Lake, Sask.,
einn af þektustu hagyrðingum með-
al íslendinga, Valdimar Pálsson.
Fyrir hálfu öðru ári hitti eg hann
að máli í þeim tilgangi að spyrja
hann út í skáldskap hans, og hafði
hugsað mér að minnast á hann með
nokkrum orðum í Tímaritinu. Lét
hann mér þá í té all-mikið af lausa-
vísum, sem hann hafði geymt, log
nokkrar fékk eg hjá Páli syni hans
í Leslie og Tobíasi skáldi Kalman í
Wynyard. Valdimar annars hirti
htt um að halda saman vísum sín-
um og mun ekki hafa talið sig til
stórskálda, en þeir, sem til hans
þekkja, líta á hann sem skemtilegan
fulltrúa íslenzkra alþýðuskálda.
Telja þeir, að vert sé að halda minn-
ingu hans á lofti.
Valdimar Pálsson fæddist 14.
niarz 1861 að Fótaskinni í Reykja-
dal á íslandi. Var faðir hans Páll
Jóhannsson frá Fótaskinni, bróðir
Sigurbjörns, föður Jakobínu skálds.
Er mér sagt, að skáldgáfu verði
víða vart í þeirri ætt. — Móðir
Valdimars var Herdís Eiríksdóttir
hónda í Litlu-Tungu, Björnssonar.
Er Valdimar var tveggja ára, misti
hann báða foreldra sína úr tauga-
■veiki, með viku millibili. Tók þá
nióðurfaðir hans við honum og
'J'fyggva bróður hans, er nú býr í
Uakota, og ólust þeir upp hjá hon-
um í Litlu-Tungu. Eftir dauða afa
síns fóru þeir bræður báðir til Ame-
ríku, og var Valdimar þá 17 ára, en
Tryggvi 15. — Valdimar settist að
í Winnipeg og lærði múrsmíði.
Stundaði hann jafnframt iðn sinni
ýmsa aðra vinnu, helst við járn-
brautarlagningar og byggingar.
í Winnipeg kvæntist Valdimar
Kristínu Sigurðardóttur, ættaðri af
Norðurlandi. Var hún bróðurdóttir
Ólafs frá Espihóli. Sambúð þeirra
varð stutt, því að Kristín lézt í Win-
nipeg, tveim eða þrem árum seinna,
á bezta aldri.
Síðari kona Valdimars var Kristín
Kristjánsdóttir Long. Er hún ison-
ardóttir Richard Long, sem var
rakarasonur frá Hull í Englandi
(fæddur 1782), en varð verzlunar-
maður og bóndi á íslandi. Var æfi-
ferill hans merkilegur, og af honum
eru ættir komnar all-fjölmennar á
íslandi, Færeyjum, Danmörku og
Norður-Ameríku. — Kristín lifir
mann sinn, en er orðin háöldruð og
farin að heilsu. En minnug er hún
enn á æsku sína og bemskustöðvar
í Reyðarfirði.
Þau Valdimar og Kristín fluttu
vestur til Saskatchewan og tóku
land sex mílur suður af þeim stað,
er Leslie-bær stendur nú. Færðu
þau sig seinna til Foam Lake-bæjar
og þar áttu þau heima, þangað til
gamli maðurinn andaðist.
Valdimar Pálsson sór sig í ætt við
hin íslenzku alþýðuskáld. Eg spurði
hann að því, hvenær hann hefði
byrjað að yrkja. “Mér finst eg
aldrei hafa ort”, svaraði hann. En
hann kvaðst hafa tekið eftir því á
unga aldri, einkum þegar hann sagði