Hugur - 01.06.2009, Page 120

Hugur - 01.06.2009, Page 120
118 Giorgio Baruchello skapur, harðstjórn og þar fram eftir götunum?" Ennfremur: „Sé því svarað til að öll raunveruleg illska sé grimmd í ólíkum myndum, þá felur frjálslyndisstefnan í sér þá trú að raunveruleg illska sé það versta sem við gerumst sek um [...] [og] hver myndi leggjast gegn því?“40 (2) Skilgreiningin á frjálslyndisstefnu sem andstöðu við grimmd felur í sér ,vill- andi siðvöndun': hún „gefur í skyn að andstæðingar frjálslyndisstefnu séu síður mótfallnir grimmd en þeir sem aðhyllist frjálslyndisstefnu og að þeir sem blöskri grimmd hæfilega mikið hafi þar með gengið í raðir frjálslyndra nauðugir vilj- ugir.“41 Kekes vill ekki teljast aðhyllast fijálslyndisstefnu eingöngu vegna þess að hann sé á móti grimmd. En hann er í raun mótfallinn grimmd og viðurkennir að hann hafi „skilning á slagorðinu“ að svo miklu leyti sem það höfði til „djúpstæðra siðferðiskennda". Engu að síður kýs hann að kenna sig ekki við frjálslyndisstefhu, vegna þess að frjálslyndisstefnan væri ekki besta pólitíska úrræðið sem völ væri á, ef ætlun manns væri í raun að vera andsnúinn grimmd. Kekes orðar það á þann veg að „sá sem [trúi] staðfasdega á þessa hugmynd myndi frekar hneigjast í átt að íhaldsstefnu en frjálslyndisstefnu.“42 (3) Frjálslyndisstefna almennt, en ekki bara sú sem kennd er við ótta, er of gjörn á að ýta undir grimmd frekar en að veita henni mótstöðu. Nánar tiltekið skapar frjálslyndisstefna æ fleiri tækifæri til tjáningar í mannlegum athöfnum með því að veita fólki sífellt meira frelsi. Vissulega geta gerendur slíkra athafna skapað ein- hvern varning eða listaverk, en frjálsræðið getur einnig birst sem glæpur, ofbeldi og misnotkun. Með því að verja og stuðla að frelsi sem sínu æðsta markmiði grefur frjálslyndisstefnan gröf friðsamlegs samh'fis og ryður ný og opnari svæði þar sem grimmd getur átt sér stað. Fyrsta gagnrýni Kekes er einna líklegust til að missa marks. Því fer fjarri að Kekes veiki málflutning Rortys og Shklar, hann sýnir nefnilega einmitt að margar tegundir illsku sem allir fyrirlíta megi fordæma sem grimmdarverk og þannig færir hann okkur heim sanninn um að óttafijálslyndisstefna takist á við afar mikil- væg og áríðandi efni. Onnur gagnrýnin er sennilega ekki eins fjarri lagi. Vitanlega eru íjölmörg dæmi þess að andstaða við grimmd sé allskostar óháð frjálslyndis- stefnu, allt frá De clementia eftir Seneca til samfélagslegra kennisetninga kaþólsku kirkjunnar nú á dögum. Hugsanlega gerast Shklar og Rorty sek um einfeldni gagnvart hinni margbrotnu sögu sem býr að baki kenningunni um andstöðu við grimmd, því að hún var ekki íundin upp af frjálslyndum. Það er því athyglisvert og upplýsandi þegar Rorty viðurkennir að þeir sem aðhyhist frjálslyndisstefnu, þar á meðal hann sjálfur, vilji notfæra sér hina kristnu hefð kærleiks og samstöðu „án þess þó að gera ráð fyrir kennisetningunum sem þeirri hefð fylgir“, þ.e.a.s. trú á hina æðstu veru eða örlög sem stjórnast af guðlegri forsjón.43 40 John Kekes, „Cruelty and Liberalism" (skammstafað CL héðan í frá), s. 835. 41 CL, s. 836-8. 42 CL, s. 836-8. 43 PPi, s. 176. J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.