Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Page 131
129
ans, í öðru lagi að afla nokkurs fjár, skólanum til
styrktar.
Skulu hér nefnd helztu atriði, er til skemmtunar
voru. Ræður fluttu þessir: Magnús Torfason sýslumað-
ur, Bjarni Bjarnason skólastjóri, séra Guðmundur Ein-
arsson, Jörundur Brynjólfsson alþingismaður og Gísli
Guðmundsson ritstjóri.
Stúlkur sýndu leikfimi undir stjórn fimleikakennara
skólans. Kór kvenna, er hér voru á námskeiði og bland-
aður kór, skipaður fyrverandi nemendum skólans, sungu
undir stjórn söngkennarans. Lúðrasveit úr Reykjavík
lék við og við allan daginn. Skemmtiferðir um vatnið
á bátum skólans. Nemendur frá skólanum þreyttu sund
í vatninu. Að síðustu var stiginn dans í leikfimishús-
inu.
Margir nemendur lögðu á sig lengri og skemmri
ferðalög í því skyni, að aðstoða við samkomuna, til þess
að taka þátt í leikfimi og söng og halda uppi reglu o.
s. frv.
Veður var hið ákjósanlegasta þennan dag. Fjórir lög-
regluþjónar voru hér úr Reykjavik og var viðbúnaður
allur vandaður. En þó var drykkjuskapur svo mikill,
að hans vegna verður sennilega ekki lagt út í að halda
samskonar samkomur aftur, fyrst um sinn. Að þessari
samkomu undanskildri, hefir tekizt að halda víni frá
þessum stað, þrátt fyrir mjög mikla umferð allan árs-
ins hring.
Einkunnir á vorprófi 1932.
Bóklegt íþrótt- Meðal-
nám ir einkunn
Anna Jónsdóttir . . . 7.71 7.30 7.63
Álfur Helgason . . . . 6.51 8.00 6.77
Árni Eiríksson . . . . 8.00 6.09 7.61
Björgvin Ólafsson . . . . . . . . 6.36 7.30 6.53
Björgvin Sveinsson . . . . . . 7.60 7.60
9