Helgafell - 01.05.1953, Page 6
4
HELGAFELL
jaínvæginu fullkomlega náð. Þá eru það ekki lengur kynjadýr
annars heims eða fjarrænar formgerðir mannslíkamans sem
listamaðurinn heggur í steininn, heldur ljúfari myndir og jafn-
vægari. Túlkunin binzt ekki lengur formgerðinni einni, heldur
frásögninni. Svo hriktir í grunninum, það koma fram ný trúar-
viðhorf, nýjar kenningar um eðli heims, bændauppreisnir, — og
listin, þessi nákvæmasti barómeter þjóðfélagslegra hræringa,
sýnir hnignunina á mjög áþreifanlegan hátt. Yfirspennt tilfinn-
ingaríki, mikið flúr í klæðum, ofhleðsla myndsviðsins — allt ber
glöggt merki þess, að dagar mikils menningarskeiðs séu taldir.
Gróskan er horfin, öryggiskenndin er horfin og loks hverfur
líka löngunin til dramatískrar ofhleðslu. Þá er aðeins eitt eftir:
Kunnáttan, handverkið. Skegghár dýrlinganna eru talin, brot-
inn heilinn um það, hvernig skuli festa á þá geislabauginn, eða
reynt að komast að því, hverskonar viður hafi verið í krossi
Krists.