Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 53

Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 53
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 53 sem ráðstafar stærsta hluta fjármagns ríki­ sins. En í minni ráðherratíð voru mestar deilur um húsnæðismálin. Þeim var gjör ­ breytt á meðan ég gegndi starfinu, bæði félagslega og almenna húsnæðiskerfinu. Og húsnæðismálin voru tvímælalaust það verkefni sem mest tóku á í starfi mínu þá.“ níu rÁðherrar af sautjÁn Konur Hún segir erfitt að meta hvaða máli það hafi skipt fyrir jafnréttisbaráttuna að hún varð forsætisráðherra. „Tíminn mun auðvitað leiða það í ljós. En í ríkisstjórnum mín um voru konur í fyrsta skipti jafn ­ marg ar og karlar og um tíma voru þær í meirihluta. Af sautján ráðherrum, sem áttu sæti í þessum stjórnum, voru níu konur. Og auk þess að kona varð í fyrsta skipti forsætisráðherra á þessu tímabili varð kona líka í fyrsta skipti fjármála­ og efnahagsráðherra. Jafnréttis­ og mann ­ réttindamál almennt fengu þar að auki aukið vægi. Með lagabreytingum árið 2010 var konum ruddur vegur að stór ­ aukn um hlut í stjórnum hlutafélaga og lífeyrissjóða, þ.e. með lögum um 40% kynja kvóta. Ríkisstjórn mín varð sú fyrsta í sögunni sem náði lögbundnum hlut kynjanna í nefndum og ráðum á vegum stjórnvalda og kynjuð hagstjórn var inn­ leidd. Tekið var á kynbundnum launa ­ mun í öllum ráðuneytum og samþykkt ítarleg framkvæmdaáætlun um launa ­ jafn rétti kynjanna. Unnið var eftir fyrstu að gerðaáætlun Íslands gegn mansali. Alþjóðlegir samningar gegn mansali og gegn kynferðislegri misnotkun á börnum voru fullgiltir og Evrópuráðssamningur gegn kynbundnu ofbeldi undirritaður af Íslands hálfu. Ákvæði sem heimila brott­ flutning ofbeldismanna af heimili voru leidd í lög. Kaup á vændi voru gerð refsi ­ verð og nektarstaðir bannaðir. Miklum fjármunum var varið til Kvennaathvarfs og til vitundarvakningar og aðgerðaáætlunar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Ísland hefur nú á hverju ári frá hruni skipað efsta sæti í mælingum alþjóða efna hagsráðsins á jafnrétti í heiminum. Ríkis stjórn mín lagði einnig mikla áherslu á jöfn uð í samfélaginu. Okkur tókst að koma böndum á ójöfnuðinn og í lok kjör tíma bilsins var Ísland í hópi þeirra landa sem búa við mestan jöfnuð.“ afleiðingar hrunsins Erfiðustu verkefnin í forsætisráðherratíð Jóhönnu telur hún að hafi verið þau sem tengdust afleiðingum hrunsins. „Baráttan við að forða þjóðinni frá gjaldþroti. Þar náðum við miklum árangri. Við tókumst að auki á við mörg önnur stór verkefni á kjörtímabilinu – kannski of mörg, sökum þess að of margir hlupu frá borði í miðri baráttu og við glímdum stundum við að hafa meirihluta í erfiðum málum í þinginu. Ég verð að nefna stjórnarskrármálið sem það sem er mér efst í huga af því sem ekki náði fram að ganga. Þar var helst við grímu lausa og mjög óbilgjarna stjórnar ­ andstöðu að sakast sem var stað ráðin í að þessi samfélagssáttmáli sem þjóðin kallaði svo mjög eftir, m.a. í þjóðar at ­ kvæðagreiðslu, yrði ekki að veruleika.“ Þá nefnir hún einnig annað mál sem varð henni mjög erfitt. „Það varð mér auðvitað mikið áfall þegar Kærunefnd jafn réttismála taldi að ég hefði gerst sek um brot á jafnréttislögum við ráðningu í starf. Andstæðingar mínir í stjórnmálum, og að hluta til líka samstarfsmenn mínir, gerðu ómaklega mikið úr þessu en ég vissi að þetta var rangur úrskurður. Þó vildi ég ekki fara með málið fyrir dóm ­ stóla þar sem ég hafði beitt mér fyrir því sem jafnréttisráðherra að úrskurðir kæru ­ nefndar yrðu bindandi. Á árinu 2013 ályktaði umboðsmaður Alþingis að kæru nefnd in hefði hvorki farið að lögum né sýnt fram á að jafnréttislög hefðu verið brotin. Þessi úrskurður kærunefndarinnar hafði legið mjög þungt á mér og því var þetta mikill léttir.“ Jóhanna segir margar konur, bæði hér á landi og erlendis, hafa verið sér góðar fyrir myndir. „Ef ég á að nefna mína helstu fyrirmynd var það föðuramma mín, Jóhanna Egilsdóttir. Hún var verka lýðs foringi áratugum saman á fyrri hluta tuttug ustu aldar þegar konur og fátækt fólk bjó við skelfileg kjör og aðbúnað. Á tímum ömmu voru konur t.d. hálfdrættingar í laun um á við karla þótt þær gegndu sömu störf um og þeir. Amma Jóhanna þoldi ekki misrétti og óréttlæti og helgaði líf sitt bar áttunni fyrir jafnrétti og betra þjóðfélagi. Tilhugsunin um hana gaf mér alltaf kraft þegar ég þurfti á að halda á löng um stjórn málaferli mínum.“ Að lokum: Hvaða ráð myndi Jó hanna Sigurðardóttir gefa næsta kven for sætis ­ ráðherra?„Í þessu embætti sem öðrum er mikilvægast að vera trúr eigin samvisku og sannfæringu, þá er auðveldara að taka gagnrýni þó að á móti blási. Það skiptir líka miklu máli að hafa sjálfstraustið í lagi og standa með sjálfum sér og velja vel nánustu samstarfsmenn sína. Hroki, yfir læti og eiginhagsmunahyggja er afleitt veganesti í þetta starf. Stjórnmálamenn, ekki síst forsætisráðherrar, verða líka að líta á sig sem þjóna fólksins og hafa réttlæti, sanngirni og jöfnuð að leiðarljósi í öllum ákvörðunum. Í þessu valdamikla starfi er afar mikilvægt að setja hagsmuni almennings ávallt ofar sérhagsmunum.“ Jóhanna og Jónína með næstyngsta barnabarnið, nínu Gunnarsdóttur, í nafnaveislu þeirrar síðastnefndu í mars í fyrra. Þær eiga orðið 7 barnabörn, 1-19 ára. Ljósmyndari: Ingi R. Ingason Karlar verða að fara að skilja að það er þeirra hagur jafnt sem kvenna að breyta þessu – það er hagur allra heimila og þjóðfélagsins í heild.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.