Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2015, Side 125

Frjáls verslun - 01.05.2015, Side 125
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 125 ert ÞÚ umKringd/­ur rétta fólKinu? Hefur þú valið að hafa í kringum þig fólk sem þú treystir, fólk sem er lausnamiðað, fólk sem er stöðugt að efla sig og þroska, fólk sem er jákvætt og upp ­ byggj andi og sér tækifæri í hverju horni? Fólk sem ekki bara sér tæki færi heldur grípur þau og gerir eitthvað úr þeim, eða býr þau hreinlega til ef ekki vill betur. Veldu að umkringja þig fólki sem styður þig í að eflast og vaxa í áskorunum þínum, bæði í einkalífi og starfi. hefur ÞÚ góð Áhrif Á aðra? Ert þú það fyrir aðra sem þú vilt að aðrir séu fyrir þig, og eins og fólkið sem þú sækist eftir eða velur að hafa í kringum þig? Ert þú styðjandi, hvetjandi og leið beinandi? Er gott að leita til þín þegar upp koma áskoranir sem glíma þarf við? Ert þú ein ­ staklingur sem fólk velur sem lærimeistara eða mentor? Ert þú einstaklingur sem fólk sækir í að umgangast, bæði í vinnu og heima fyrir? teKur ÞÚ fulla Ábyrgð Á Þér? Tekur þú ábyrgð á hversu vel þér gengur með áskoranir þínar og markmið? Eða er allt öðru og öðrum um að kenna þegar eitthvað fer ekki eins og þú helst vildir? Taktu ábyrgð á vali þínu og ákvörðunum. Ert þú með á hreinu hvað það er sem þú vilt – og hvað það er sem þú vilt ekki? Hvert stefnirðu í starfi og í einkalífi? Settu þér þína eigin stefnu og fylgdu henni, veldu sjálfsaga fram yfir eftirsjá síðar. Það vaknar enginn einn daginn á Everest! hversu miKið fjÁrfestirðu í Þinni Þróun? Sækist þú eftir að læra nýja hluti og þróast í starfi þínu og verkefnum? Sækirðu reglulega ráðstefnur, námskeið eða fyrir­ lestra, jafnvel á netinu? Hvaða bók lastu síðast? Ertu í leshring? Sækir þú fundi hjá fagfélagi? Hér snýst fjárfestingin ekki eingöngu um krónur og aura heldur um tíma og meðvitund gagnvart þeirri staðreynd að ef þú leggur þig ekki fram um að eflast og þróast dregstu líklega aftur úr, það er ekki til nein kyrrstaða. hvernig eru viðhorf Þín? Hvernig tekur þú á móti nýjum og ögrandi verkefnum? Hvernig tekstu á við áskoranir eða hindr anir? Eyðir þú löngum tíma í að býsn ast yfir öllu því sem er að og hvernig hlutirnir ættu að vera? Tekurðu þátt í neikvæðum og niðurdrepandi umræðum sem hafa engan uppbyggilegan tilgang? Er glasið hjá þér oftar hálftómt en hálffullt? Býrð þú yfir seiglu og úthaldi sigurvegar­ ans eða gefstu upp við fyrsta mótlæti? Með jákvæðu viðhorfi og lausna miðaðri hugsun verða hin flóknustu og erfiðustu verkefni mun léttari og það skemmtilega er að þú hefur val – og getur valið þín viðhorf. hvernig er samsKipta ­ hæfni Þín? Misskilur fólk þig oft? Hvernig gengur þér að koma skilaboðum og hugmyndum þínum á fram­ færi? Hversu vel gengur þér að fá fólk til að sannfærast um ágæti þinna lausna? Sækistu eftir að kynnast og spjalla við nýtt fólk, á fundum eða í boðum, eða finnst þér það óþægilegt eða lítið spennandi? Lendir þú oft upp á kant við annað fólk, í vinnu eða utan vinnu? Góð samskiptahæfni er lykil­ atriði í nútímastarfsumhverfi og æ fjölbreytilegra samfélagi. Góðu fréttirnar eru þær að sam­ skiptahæfni er hægt að styrkja og efla. myndir ÞÚ rÁða Þig í vinnu? Ef þú værir að fara að ráða starfs mann í þá stöðu sem þú gegnir núna, myndir þú þá, byggt á frammistöðu þinni, við horfum og framþróun, ráða sjálfan þig eða eru margir aðrir betur til þess fallnir að gegna stöðunni? Hvað telurðu að þú gætir helst bætt hjá þér sem starfsmanni, fagmanni og samstarfsfélaga? Hvað ætlarðu að gera í því og hvenær? Sumar þessara spurninga kunna að vera óþægilegar en ég mæli með að þú setjir inn í dagbókina þína reglubundinn fund með sjálfum/sjálfri þér, hald inn 1­4 x í mánuði, í um það bil 30­60 mínútur í senn og farir í gegnum ofangreindar hugleið­ ingar og spurningar. Haltu þér ábyrgum/ábyrgri fyrir því að ná þeim árangri í leik og starfi sem þú veist að þú ert fær um. Ég vona að þú getir í einlægni sagt, byggt á frammistöðu þinni og framkomu, að þú myndir ráða þig í vinnu og sækjast eftir eigin félagsskap. Myndir þú ráða þig í vinnu? Ef þú værir að fara að ráða starfsmann í þá stöðu sem þú gegnir núna, myndir þú þá, byggt á frammistöðu þinni, viðhorfum og framþróun, ráða sjálfan þig eða eru margir aðrir betur til þess fallnir að gegna stöðunni?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.