Frjáls verslun - 01.05.2015, Qupperneq 152
152 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
Mikil vitundarvakning
Borg fasteignasala
Starfsemi Borgar fasteignasölu hvílir á sterkum grunni sem byggist á trausti og áreiðanleika, sem eru
lykilatriði í fasteignaviðskiptum.
S
varið vefst ekki fyrir
Þóru Birgisdóttur,
fram kvæmdastjóra
Borgar fasteignasölu,
þegar hún er innt eftir hvaða
atriði hún telji hafa haft mest
að segja um stöðu kvenna
inn an atvinnulífsins á síðustu
árum:
„Ég tel það skemmtilega
staðreynd að það voru í raun
aukin réttindi karla til fæð
ingarorlofs 20022003 sem
höfðu þau áhrif að at vinnu
rek endur hættu að líta svo á
að orlof vegna barneigna væri
vandamál tengt ráðningu ungra
kvenna og jöfnuðu þannig
mögu leika þeirra til starfsframa
innan fyrirtækja, þrátt fyrir að
vera á barneignaraldri.
Menntun kvenna og þá sérstak
lega innan greina sem áður
þóttu karllægar – svo sem verk
fræði og tæknimenntunar hvers
konar – hefur líka fjölgað kon um
í stjórnunarstöðum á breið ari
vettvangi en áður var.
Þá er ekki hægt að horfa
framhjá því að kynjakvóti og
um ræðan í kringum hann hefur
smitast niður stigann og gert
val á stjórnendum breiðara, án
tillits til hvors kyns einstakl ing
urinn er.“
margar konur í
fararbroddi
Hvaða konur telur þú að
hafi haft mest áhrif í íslensku
samfélagi undanfarin tuttugu
ár?
„Vigdís Finnbogadóttir sem
alger brautryðjandi fyrir
þær sem síðar komu eins og
Rann veigu Rist, Jóhönnu
Sigurðardóttur, Þorgerði
Katrínu, Hönnu Birnu, Birnu
Einarsdóttur, Liv Bergþórs
dóttur, Þóru Arnórs og fleiri
sem sýna hvers konur eru
megn ugar og eru fyrirmyndir
ungra stúlkna.“
Telur þú að konur hafi í
raun jafnan rétt og karlar til
starfsþróunar og starfsframa
innan fyrirtækja?
„Tvímælalaust. Eflaust misjafnt
eftir fyrirtækjum þó. Það hefur
orðið mikil vitundarvakning í
þessum efnum og mörg fyrir
tæki sem vinna gagngert í
því að jafna kynjahlutföllin í
stjórnunarstöðum. Ég skynja
oft óþolinmæði og pirring hjá
yngri konum yfir að þetta gangi
hægt – en reynsla mín í vinnu,
gegnum nám og sérhæfingu
undanfarin tíu ár hefur sýnt
mér að oftar en ekki er það
einstaklingurinn sjálfur sem er
að kljást við eigin hugmyndir
um kynjamismunun og
réttlæti.“
stækkað á öllum sviðum
Hvaða árangur ert þú ánægð
ust með innan fyrirtækis þíns á
undanförnum árum?
„Borg fasteignsala er ungt
fyrirtæki þótt hópurinn sem
stendur á bak við fyrir tækið
hafi mikla reynslu í fasteigna
sölu. Við stofnuðum fyrirtækið
fyrir tveimur árum, en við
höfum nú stækkað á öllum
sviðum; kaupsamningar eru
helmingi fleiri en að meðal
tali fyrsta árið og starfs mönn
um hefur fjölgað. Það er
ánægju legast að geta laðað
að hóp af fólki með breiðan
grunn og sérþekkingu sem
hefur það að markmiði að
þjónusta einstaklinga og fjöl
skyldur sem og atvinnulífið í
fasteignaviðskiptum. Við flutt
um svo í Síðumúla 23 í október
á síðasta ári en það hefur gefið
okkur færi á að bjóða starfs
fólkinu betri að stöðu sem og
fyrir móttöku við skiptavina.“
Þóra Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Borgar fasteignasölu.
„Þá er ekki hægt að horfa
framhjá því að kynjakvóti
og um ræðan í kringum
hann hefur smitast niður
stigann og gert val á
stjórnendum breiðara.“
Stefán Ólafur Jóhannsson, Úlfar Þór Davíðsson, Jóhanna í. Sigurðardóttir, Gunnlaugur Þráinsson,
Vilborg G. Hansen, Axel Axelsson, Þóra Birgisdóttir, Brandur Gunnarsson, Þórunn Sigurðardóttir,
Gísli elí Guðnason og Héðinn Birnir Árnason. Á myndina vantar: ingimar ingimarsson, Sigurð Fannar
Guðmundsson, Birgittu Ásgrímsdóttur, Stefán Pál Jónsson og Maríu Mjöll Guðmundsdóttur.