Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 175

Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 175
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 175 Þjóðfélag hÚsfreyjunnar Þetta frumbyggjaeinkenni samfélaga í ólík­ um heimshornum getur því hafa leitt til þess að ekki þótti tiltökumál þótt konur kysu full­ trúa til trúnaðarstarfa. Það voru enda ekkjur sem stóðu fyrir búi sem fyrstar máttu kjósa á Íslandi. Kaupmannsekkjan Vilhelmína Lever á Akureyri kaus fyrst íslenskra kvenna. Þannig náðu íslenskar konur, eins og stöll ur þeirra í löndum sem bjuggu við líka atvinnu­ hætti, kosningarétti í áföngum og á þeim sviðum þar sem þær voru virkar hvort eð var – eins og til dæmis í hreppsmálum eða við að gæta hagsmuna heimilanna. Þetta kemur líka fram þegar kosningaréttur kvenna var samþykktur á Alþingi fyrst árið 1911 og svo aftur 1915 þegar fyrsta áfanga var náð. Andstaðan var lítil. Tilraun Alþingis árið 1911 hlaut ekki staðfestingu konungs þá enda hluti af stjórnarskrárbreytingu sem konungur hafnaði í heild sinni. eKKi Á móti en lafhræddir Karlarnir á þingi voru í hvorugt skiptið á móti kosningarétti kvenna. Að vísu voru alltaf raddir bæði inni á þingi og í blöðum lands manna um að staða konunnar væri inni á heimilinu og svo framvegis en karlarnir á þingi voru almennt ekki á móti við umræð­ urnar 1911 og 1915. En þeir voru hræddir. Óttinn var ekki ástæðulaus því allt eins gat farið svo að konur rændu völdum! Við bæjarstjórnarkosningarnar 1908 hlaut listi kvenna, stofnaður í krafti nýfengins kosninga réttar þar, flest atkvæði og ríflega fjórðung fylgis. Karlarnir voru sundraðir á eigi færri en þrettán framboðslista vegna hefðbundins ósættis allra við alla. Konurnar stóðu saman um einn lista. Þetta bauð upp á hreina kynskiptingu í pólitíkinni og körlunum þá nauðugur einn kostur að standa saman eða grípa til annarra ráða. Svokölluð sjálfstæðisbarátta áranna á undan hafði leitt til meira og minna óskiljan­ legra og persónulegra deilna milli karlanna í pólitíkinni. Nú stóðu þeir allt í einu frammi fyrir sameiginlegri ógn: Konurnar voru mætt­ ar sameinaðar á völlinn. Kvennalistinn 1908 var myndaður af fernum helstu samtökum kvenna. forvarnastarf Á Þingi Og nú voru góð ráð dýr. Hvað bar að gera? Svo virðist sem Jón alþingsimaður frá Múla Jónsson hafi fyrstur bent á ráðið. Það var þegar við umræðurnar um kosningaréttinn árið 1911. Jón lagði til takmarkanir á kosn­ ingarétti kvenna þannig að aðeins fertugar konur og eldri mættu kjósa fyrst og lækka svo kosn ingaaldurinn um eitt ár á ári upp frá því til ársins 1931 þegar kosningaréttur yrði jafn. Með þessu móti kæmi ekki svo mikill kvenna skari inn á kjörskrá á einu ári að samfé laginu stafaði hætta af. Hann var ekki á móti kosningaréttinum en benti á mótvægis aðgerð. „Engin menntuð þjóð hefur þorað að gera þessu líka tilraun,“ sagði Jón frá Múla um jafnan kosningarétt karla og kvenna. Hann nefndi dæmi, einmitt frá hinu strjál­ býla Wyom ing í Ameríku, um að ef jafnrétti næðist á löngum tíma væri hættunni afstýrt. Í Wyoming var kosningaréttur kynjanna orðinn jafn en samfélagið ekki hrunið. Jón frá Múla talaði þarna í fyrstu fyrir dauf um eyrum kynbræðra sinna en þegar kosn ingaréttur kvenna var loks í höfn 19. júní 1915 voru þingmenn almennt á hans máli og settu kosningaaldur kvenna við fjörutíu ár ólíkt því sem var í öðrum löndum. Hafa ber í huga að samfélagið var mjög íhaldssamt og á Íslandi viðgekkst að takmarka mannréttindi meira en í nálægum löndum. hættan nærtæK og raunveruleg Jón Magnússon, síðar forsætisráðherra, sá að þetta var þjóðráð hjá nafna hans frá Múla og vísaði til hættunnar sem stafaði af miklu kjörfylgi kvennalista í Reykjavík: „Að minsta kosti höfum við Reykvíkingar dæmi fyrir okk­ ur í þessu,“ sagði hann skelkaður. Karlarnir óttuðust beinlínis samstöðu kvenna eftir kosn ingasigurinn 1908. Hættunni á valdaráni kvenna var því bægt frá í bili en aldursákvæðið fellt niður árið 1920. Þetta sérstæða ákvæði skýrist líka af því að konur voru þegar orðnar áberandi á lægsta sjórnsýslustiginu, og kosningabarátta þeirra var betur skipulögð en hjá körlunum. Konur í Reykjavík höfðu tekið upp þá aðferð að ræða við allar atkvæðisbærar konur fyrir kjördag – maður­á­mann­kosningabarátta – en karlarnir einbeittu sér að fúkyrðum í blöðunum og yfirboðum í sjálfstæðismálinu. Konur höfðu og áður náð verulegum ár angri í að safna undiskriftum þar sem kosninga­ réttar var krafist. Yfirlýstir andstæðingar kosningaréttar kvenna voru fáir og hjáróma á þessum umbrotatímum þótt efasemdir um hæfileika kvenna til landsstjórnar væru útbreiddar. sKortur Á ÞrosKandi barÁttu Baráttan var friðsöm. Það lá aldrei við átök­ um baráttukvenna og lögreglu eins og gerð­ ist í útlöndum þar sem „súffragettur“ voru fangelsaðar eins og hverjir aðrir anarkistar og kommúnistar. Það var borgarmenning að slást á götunum en á Íslandi var engin borg frekar en í Wyoming þar sem konur höfðu fengið kosningaréttinn baráttulítið. Sveita­ menn slást ekki nema þeir séu svangir. sumum þótti þetta miður. í fyrsta tölublaði 19. júní skrifaði inga lára lárusdóttir ritstjóri: „Réttur­sá,­er­oss­hefir­verið­fenginn­í­ hend ur, ætti að vera oss öllum dýrmætur, og ekki ætti það að draga úr gildi hans, að vér höfum fengið hann án þess að um nokkra verulega fyrirhöfn sé að tala frá vorri hendi. Vegna þess höfum vér farið á mis við þann þroska er leiðir af því að berjast góðri baráttu, og þurfum eigi að blygðast vor fyrir að játa það, að vér erum í mörgu stutt á veg komnar og að þekking vor á þjóðfélagsmálum nær skammt.“ Kvennalistar Á undanhaldi Þetta var árið 1917, tveimur árum eftir að konurnar fengu kosningaréttinn. Inga Lára vísaði og til þess að nú væru byltingartímar um allan heim – febrúarbyltingin í Rússlandi afstaðin – en íslenskar konur skammt á veg komnar þótti henni. Árangur kvenna í kosningum var umtals­ verður næstu árin og sennilega frækileg­ astur árið 1922 þegar konur buðu í fyrsta sinn fram lista kvenna við kjör landskjörinna þingmanna til Alþingis. Þá kom Ingibjörg H. Bjarnason inn á þing fyrst kvenna. En eftir þetta hverfa kvennalistarnir smátt og smátt úr sögunni um langa hríð og ógnin af valdatöku kvenna dvínaði með tíð og tíma rétt eins og Jón frá Múla hafði spáð. Þjóðfélag áranna milli stríða var líka mikið breytt frá því verið hafði fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Dansk­íslenska borgarastéttin, með fjöl­ skyldufyrirtækjunum sínum, kvenréttindakon­ unum og nánum tengslum við útlönd, missti sambandið og móðurlandið og þurrkaðist nánast út í erfiðleikum stríðsins. Nýjar róttæk­ ar kvenréttindakonur komu því ekki fram á sjónarsviðið fyrr en áratugum síðar. „Karlarnir óttuðust beinlínis samstöðu kvenna eftir kosningasigurinn 1908.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.