Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 183
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 183
Þegar í kosningabaráttunni 1996 var
hlutverk Guðrúnar sem maka stærra en verið
hafði við fyrri forsetakjör. Hún tók virkan
þátt í baráttunni, talaði á fundum og var í
viðtölum. Áður höfðu makar frambjóðenda
alltaf haldið sig til hlés og verið metnar utan
frá eftir ásýnd og afspurn. Guðrún talaði sínu
máli sjálf.
Erlendir fjölmiðlar sögðu eftir kjördag að
Íslendingar hefðu „keypt allan pakkann“.
Hjónin voru kosin og víst er að hluti fylgis
Ólafs Ragnars Grímssonar kom einmitt vegna
þess að kjósendur vildu hjón á Bessa
staði. Hugmyndirnar um „æðstu húsmóður
lýðveldi sins“ voru þrátt fyrir allt lífseigar.
Guðrún Katrín hafði fyrir 1996 gegnt
mun sjálfstæðara hlutverki í samfélaginu
en fyrirrennarar hennar. Hún vann sem
framkvæmdastjóri Póstmannafélagsins og
rak um tíma eigin verslun. Hún hafði og tekið
þátt í sveitarstjórnarmálum og var á engan
hátt dæmigerð fyrir húsmæður fyrr á tímum
lýðveldisins.
Á Bessastöðum gekk Guðrún Katrín inn í
hlutverk forsetafrúarinnar eins og það hafði
verið mótað allt frá upphafi lýðveldisins.
Þjóðbúningurinn var á sínum stað og hún
sameinaði flest það sem fólk hafði áður tengt
við Bessastaði.
Og í tíð hennar tók forsetafrúin sér einnig
sjálfstætt hlutverk. Hún lét til sín taka á sviði
menningar og lista, í velferðarmálum og í
baráttunni gegn fíkniefnum. Þetta er hlutverk
í ætt við það sem drottningar á Norðurlönd
um hafa gegnt hin síðari ár og svo auðvitað
Vigdís Finnbogadóttir.
En Guðrún Katrín var ekki lengi á Bessa
stöðum. Hún veiktist af hvítblæði rúmu ári
eftir kosningarnar – sama sjúkdómi og varð
banamein Dóru Þórhallsdóttur – og lést á
sjúkrahúsi í Seattle í Bandaríkjunum 12.
október 1998.
Dorrit Moussaieff, forsetafrú
frá 2003:
Tvöfalt hlutverk
Dorrit Moussaieff er önnur er
lenda konan sem verður forsetafrú
á Bessastöðum. Hin var Georgía
Björnsson. En hún er hin fyrsta þeirra
sem ekki býr þar að staðaldri. Hlut
verk forsetafrúar hefur því breyst hin
síðustu ár.
Dorrit Moussaieff hefur verið forsetafrú frá
14. maí árið 2003 þegar þau Ólafur Ragnar
gengu í hjónaband á sextugsafmælisdegi
hans. Þau höfðu þá verið trúlofuð frá árinu
2000 og komið fram saman við embættis
verk forseta.
Það er nýtt að forseti kvænist öðru sinni
og ný eiginkona verði að taka við skyldun
um á Bessastöðum á forsetaferlinum.
Það hefur Dorrit gert og fylgt hefðinni.
Þjóðbúningurinn er á sínum stað og Dorrit
hefur lagt sig fram um að læra tungumálið.
Þau hjónin eru umtalaðir gestgjafar á
Bessastöðum.
Dorrit hefur einnig tekið upp verkefni sem
forverar hennar hafa sinnt á sviði mennta
og menningarmála. Hún hefur lagt sig fram
um að koma íslensku listafólki á framfæri
erlendis og nýtt þar sambönd sín. Og hún
hefur stutt við íslensk fyrirtæki erlendis.
Margt annað er ólíkt. Árið 2012 flutti Dorrit
lögheimili sitt til Lundúna þar sem hún
stundar viðskipti og þarf að sinna öldruðum
foreldrum. Dorrit er því bæði forsetafrú á
Bessastöðum og kaupmaður í Lundúnum.
Dorrit Moussaieff fæddist 12. janúar 1950
í Jerúsalem en foreldrar hennar, Alisa og
Shlomo Moussaieff, hafa í áratugi fengist
við skartgripaviðskipti. Dóttirin hefur fetað í
fótspor þeirra.
Dorrit moussaieff er önnur erlenda konan
sem verður forsetafrú á bessastöðum.
Hún hefur lagt sig fram um að koma ís-
lensku listafólki á framfæri erlendis og
nýtt þar sambönd sín.
Guðrún katrín Þorbergsdóttir, eiginkona Ólafs ragnars Grímssonar, veiktist af hvítblæði og
lést á sjúkrahúsi í seattle í bandaríkjunum 12. október 1998. Í kosningabaráttunni 1996 var
hlutverk Guðrúnar sem maka stærra en verið hafði við fyrri forsetakjör.
Árið 2012 flutti Dorrit lögheimili sitt til
Lundúna þar sem hún stundar viðskipti
og þarf að sinna öldruðum foreldrum.
Dorrit er því bæði forsetafrú á Bessa
stöðum og kaupmaður í Lundúnum.