Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 204
204 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Melinda Gates,
styrktarsjóði Bills
og Melindu Gates:
Melinda Gates er enn sem fyrr í þriðja
sætinu og það vegna þess að hún er
moldrík. Bill, maður hennar, er þó
frægari og oftar í sviðsljósinu sem
fyrirlesari og hugsuður.
En Melinda stýrir styrktarsjóði þeirra í reynd.
Áhrif hennar koma fram í gegnum stefnu
sjóðsins. Það var hins vegar Bill sem aflaði
auðsins í upphafi. Þau hjón einbeita sér nú
að því að gefa peninga þar sem þeirra er
mest þörf í fátækum og vanþróuðum ríkjum.
Sumt er umdeilt sem þau gera. Melinda
hefur þótt um of áhugasöm um einfaldar en
áberandi aðgerðir til að bæta heilsu fólks í
þriðja heiminum. Þetta eru t.d. herferðir til
bólusetningar barna. Þær eru myndrænar en
þróunarfræðingar segja að meiri þörf sé á að
byggja upp heilbrigðisþjónustuna frá grunni.
Árlega gefa þau Gateshjón þrjá til fjóra
milljarða Bandaríkjadala til góðverka.
Melinda segir að sumt það sem þau hjón
gefa fari í súginn en slíkt sé eðli góðverka;
að taka áhættu þegar aðrir þora ekki.
Janet Yellen, seðla
bankastjóri í Banda
ríkj un um:
Það kann að þykja merkilegt að
seðlabanka stjór inn skipar sætið á
eftir Melindu Gates, sem þó er bara
„prívat persóna“.
En Janet Yellen er ekki áberandi utan fjár
málaheimsins. Hún er ekki sú sem oftast
birtist á skjánum og ekki sú sem á flesta vini á
Facebook. En áhrifin eru mikil og hún er fyrsta
konan sem verður seðlabankastjóri vestra.
Í einkalífinu fer lítið fyrir henni en fjármála
menn og stjórnmálamenn fylgjast vel með
henni. Hún hefur leitast við að grynnka á
skuldum ríkisins með því að kaupa aftur
skuldabréf sem gefin voru út í stórum stíl í
tíð Georges W. Bush. Yellen vill ekki prenta
seðla í óhófi.
Varkár stefna hennar á mikinn þátt í að efna
hagur er heldur á uppleið. Sýnileg batamerki
gætu haft mikil áhrif á forsetakosn ingarnar á
næsta ári. Það er jafnvel talað um vaxtahækk
un í sumar, sem einnig er talið merki um að
fjármál séu að ná jafnvægi.
Mary Barra,
forstjóri General
Motors:
Mary Barra er fyrsta konan sem
tekur við stjórn eins af hinum stóru
fyrirtækjum í bifreiðasmíði.
General Motors var í djúpum skít þegar hún
tók við stjórninni í fyrra, eftir að hafa verið hjá
fyrirtækinu í meira en þrjá áratugi.
Banvænn framleiðslugalli leiddi til þess að
laga þurfti 30 milljónir bíla og reksturinn þótti
ómarkviss og aðhaldslaus. Það hefur verið
hlutverk Barra að rétta fánakerru bílaflotans
af á veginum og það hefur tekist í mörgum
atriðum. Í það minnsta er ekki lengur þörf á
að horfa bara í baksýnisspegilinn.
Núna á að hefja markaðssókn. Hugmyndin
er að Cadillac verði á ný eftirsóttur lúxus
bíll og það á að hreinsa til í framleiðslunni,
loka sumum verksmiðjum og opna nýjar.
Verkefnin eru stór en hrakspámenn, sem
sáu fyrir fall Mary Barra úr einu höfuðvígi
karlanna, verða að bíða enn um sinn eftir að
spádómar þeirra rætist.
3
Sumt er umdeilt sem þau gera.
Melinda hefur þótt um of áhugasöm
um einfaldar en áberandi aðgerðir
til að bæta heilsu fólks í þriðja
heiminum. Þetta eru t.d. herferðir til
bólusetningar barna.
Hún hefur leitast við að grynnka á
skuldum ríkisins með því að kaupa
aftur skuldabréf sem gefin voru út
í stórum stíl í tíð Georges W. Bush.
Yellen vill ekki prenta seðla
í óhófi.
Það hefur verið hlutverk Barra að
rétta fánakerru bílaflotans af á vegin
um og það hefur tekist í mörgum
atriðum. Í það minnsta er ekki lengur
þörf á að horfa bara í baksýnis
spegilinn.
4 5