Frjáls verslun - 01.05.2015, Síða 216
216 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Hún uppgötvaði snemma
að miklir markaðir voru að
opnast í Asíu, bæði Japan
og Kína, og þróaði sérstak
lega vörur með þann hóp í
huga. Núna er þetta stærsti
og mikilvægasti viðskipta
hópurinn í hátískuvörum.
Sala á hátískuvörum til
Kína er eitt af því sem
heldur frönsku efnahagslífi
gangandi.
stærðum – svo að ég fór að
framleiða þau.“
Madame Carven var samtíma
kona Christians Dior og Pierres
Balmain en þessi hópur umbylti
tískuheiminum með afgerandi
hætti á sjötta og sjöunda ára
tugn um. Hún var menntuð í
Lista háskólanum í París þar
sem hún lærði arkitektúr og
inn an hússhönnun, en heillaðist
snemma af fatahönnun og tísku.
Carven var frumkvöðull á
mörgum sviðum og hönnunar
svið hennar afar víðfeðmt: Bjó til
einföld en glæsileg hversdags
föt, nýstárleg ilmvötn (m.a. hið
fræga Ma Griffie), sundföt,
skartgripi, húsgögn, kampavín
og undirföt og hún hannaði m.a.
fyrsta brjóstahaldarann sem
sérstaklega var gerður til þess
að lyfta brjóstum.
Hún hannaði búninga fyrir
leik hús og kvikmyndir (m.a.
Hitch cock myndirnar Rear Win
dow og Vertigo), gerði flug freyju
bún inga fyrir ein 20 flug félög og
ýmiskonar búninga fyrir opin bera
starfs menn franska ríkisins. Verk
hennar voru fyrir allra augum
um allan heim, á hverj um degi.
Klæðnaður fólks varð látlausari
og skemmtilegri með hennar
handbragði og hönnun.
fötin sKapa manninn
„Það sem vakti fyrir mér með
þessu öllu saman var að mig
langaði fyrst og fremst að hjálpa
ungu fólki til þess að finna sjálft
sig, efla sjálfstraust þess, kenna
því að klæða sig, finna sína eigin
fegurð og sýna hana í litum,
glæsileika og með öllu yfir
bragði,“ sagði Madame í viðtali
fyrir fjórum árum þegar hún fór
yfir feril sinn.
„Hönnuðir eru stöðugt að reyna
að setja sitt mark á vöruna;
stela athyglinni, sýna sjálfa
sig og hugsa um fötin sem sín
lista verk (sem þau auðvitað eru)
– en þetta er röng nálgun. Þú
verður alltaf að hugsa um fólkið;
þetta frábæra fólk sem ætlar
að klæðast þessum fötum. Mín
nálg un er alltaf þessi: Hvernig
get ég hámarkað fegurð þess?“
Hún vakti fyrst athygli fyrir
ferða töskur sem hún hannaði og
báru fornafn hennar sjálfrar en
eftirnafn frænku hennar, Josy
Boyriven, sem hjálpaði henni að
koma sér á framfæri í tísku heimi n
um. Margar stjörnur, eins og Edith
Piaf og Cécile Aubry, klædd ust
fötum hennar. Verk henn ar voru
yfirleitt einföld en snjöll, látlaus og
þægileg, en samt í sam ræmi við
hátískustíl Parísar.
slungin marKaðsKona
Madame Carven var alla tíð
með vituð um að það væri ekki
nóg að hanna glæsilega vöru
– það þyrfti líka að markaðs
setja hana og selja. Hún bjó til
sér staka línu árið 1950 sem hún
kallaði Gone With The Wind,
þegar sú kvikmynd tröllreið
heims byggðinni. Ma Griffeilm
vatn inu hennar var dreift um alla
París í litlum fallhlífum þegar því
var fagnað að tíu ár voru liðin frá
frelsun borgarinnar frá nasistum.
Ilmvatnið sló auðvitað samstund
is í gegn.
Hún uppgötvaði snemma að
miklir markaðir voru að opnast
í Asíu, bæði Japan og Kína,
og þróaði sérstaklega vörur
með þann hóp í huga. Gerði
sérstakar vörur, föt og töskur,
fyrir asíska kaupendur og náði
snemma sterkri markaðsstöðu
á þeim slóðum, strax á áttunda
áratug síðustu aldar, sem hún
hefur haldið alla tíð síðan. Núna
er þetta stærsti og mikilvægasti
viðskiptahópurinn í hátískuvörum.
Hún uppgötvaði snemma
að heimurinn var í raun einn
markaður. Það þyrfti bara að
laga og þróa vörurnar með tilliti
til hvers markaðssvæðis. Í dag
er sala á hátískuvörum til Kína
eitt af því sem heldur frönsku
efnahagslífi gangandi.
Þetta litla sprotafyrirtæki henn
ar varð að heilu efnahagsveldi.
Starfsár hennar spanna langan
tíma; allt frá 1945 þangað til hún
settist í helgan stein 1993 og
seldi fyrirtækið. Þá var Frakk
inn Guillaume Henry ráðinn
yfirhönnuður hússins og við tók
mikill blóma og uppgangstími.
Nú eru Alexis Martial og Adrien
Caillaudad við stjórnvölinn, en
enn svífur andi Madame Carven
yfir vötnum. Hennar hugsjónir og
hugmyndir eru rauði þráðurinn í
öllu sem þar er spunnið og gert
– sögðu hönnuðirnir við fráfall
þessarar merku konu.
Madame Carven fékk æðstu
heiðursorðu franska lýðveldisins
árið 2009 fyrir ævistarf sitt og
framlag til lista og menningar.
Madame Carven var ein áhrifamesta konan innan fransks viðskiptalífs í áratugi.