Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Page 12

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Page 12
122 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Kvæði þetta birtist nokkrum dögum síðar í Norðanfara og var þá í fyrsta skipti prentað ljóð eftir Stephán G. Stephánsson og mun engan, sem las það, hafa grunað, að höfundur þessara ljóðlína yrði annað og meira en venjulegur íslenzkur hagyrðingur, enda gaf kvæðið engin fyrirheit. Kvæðið var aðeins íslenzk alþýðukurteisi þessara sveitamanna sem þótti ekki annað hlýða en að kveðja land sitt og fólk á háttbundnu, stuðluðu máli þegar svo löng för var framundan — syngja sjálfa sig úr hlaði. • Stephán G. Stephánsson kom úr íslenzkri búsveltu til hinnar miklu álfu tækifæranna og ónuminna vona. Það stóðst á endum, að komu Stepháns bar að til Wiscounsinfylkis, þar sem hann settist fyrst að, og fjárhags- og atvinnukreppa læsti krumlum um Vesturheim, hin mesta, er menn máttu þá muna. Þessi kreppa varð eldskírn hins skagfirzka sveitapilts á hinu langa skeiði lífsreynslu hans vestan hafs. Hann kom frá þjóðfélagi, þar sem menn sultu vegna skorts. Nú kom hann í þjóð- félag, þar sem menn sultu vegna allsnægta. Það voru mikil viðbrigði. Svo öfugmælakennt fyrirbrigði þjóðfélagsins var vel til þess fallið að vekja forvitni hins veðurglögga unga manns. Þúsundir, milljónir manna hafa séð þetta fyrirbrigði, hafa lifað það, en eru þó jafnnær enn í dag. Stephán G. Stephánsson krufði það til mergjar þegar á öndverðum Ameríkuárum sínum og eftir því sem aldur færðist yfir hann skynjaði hann og skildi æ betur, hvernig það yrði leyst. Þegar Stephán hafði dvalizt 14 ár í Bandaríkjunum lýsti hann í ræðu á þjóðhátíðardegi Ameríkumanna félagslegum högum þeirra á þessa leið: ,,í hinni frjálsu Ameríku, piltar mínir, eru 60 milljónir manna og tæpur helmingur nýtur fullra mannréttinda. . . . Tvær eða þrjár milljón- ir örsnauðra manna, verklausir um harðasta tíma ársins, menn sem vilja vinnu, en fá hana ekki.“ En Stephán sá um leið hvað í vændum var, baráttuna framundan: „Líknarlaus auðlegð og líðandi örbirgð hafa fylkt liði til að berjast um nauðungarvaldið. Mannúð og sanngirni verða hermannskostir hinna nýju sjálfboða, og það er þörf á heil- um fjölda af þeim. Enn er tækifæri fyrir okkur Islendinga, ekki ein- ungis að nema land í Ameríku, framfaramesta og frjálsasta landinu, heldur líka að eignast nokkurn hluta af framför og frelsi, sem Ameríka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.