Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Qupperneq 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Qupperneq 100
Siglaugur Brynleijsson „Galdrafargið“ Afskræmilegar leifar fornra trúarbragða lifðu oft lengi með hálfsiðuðum og hálf- kristnum íbúum afskekktra héraða í Ev- rópu. Þessar leifar voru oft af kyni galdurs. Afstaða kirkjunnar á fyrri hluta miðalda til fjölkynngi og seiðskratta var sú, að þetta væru leifar heiðninnar, sem hæri að uppræta. Bonifatíus lýsir því yfir á 8. öld að það sé í hæsta máta ókristilegt, að trúa á mátt galdurs og galdrakinda sem og var- úifa. Karl mikli lýsti það dauðasök á Sax- landi að hrenna eða grýta seiðskratta. Slík- ar hrennur kallaði hann „heiðnar venjur". Ymsir háklerkar höfðu uppi svipaðar skoð- anir, þeir töldu allar sögur um mátt galdra- manna fáfengilegt raus og vitleysu. Kon- ungur Ungverja Coloman, á 11. öld, telur að nornir séu hugarfóstur sjúkra manna. Slík var afstaða kirkjunnar til kukls á þeim öldum, sem lengi tíðkaðist að kalia hinar myrku aldir. Þegar kemur fram á 15. öld verður hér hreyting á. Þá snerist þetta við. Þeir sem neituðu krafti galdra- kinda voru taldir trúvillingar. Skoðanir Karls mikla og háklerka fyrri alda voru gleymdar og grafnar. Fátt var guði þóknan- legra en handtaka og réttan fjölkunnugra. Næturreiðir norna á prikum um loftið, á fund meistara þeirra djöfulsins, var talin staðreynd þegar kemur fram á 16. og 17. öld og þeir sem neituðu þeirri staðreynd voru taldir annað hvort hilaðir á geðsmun- um eða villumenn. Þessar skoðanir áttu sína upphafsmenn. Með aukinni trúarlegri innlifun og háleit- ustu kenningum mystikeranna á því skeiði, þegar „devotio moderna" upphefst og þeirri hæstu blómstran kristins dóms, hefst einnig andstæða þess, sem háleitast var talið. Því dýrðlegra, sem endurlausnar- verk Krists varð og hann háleitari, því ineir magnaðist andstæðan, djöfullinn. Á miðöldum var djöfullinn ekki neitt ámóta ofboðsleg skepna og hann varð þegar kem- ur fram á síðari hluta 15. aldar hvað þá á siðskiptaöldinni. Galdrar voru frá djöfl- inum komnir og hérlendis varð rúnameist- arinn Óðinn samsamaður hugmyndum kristinna manna og kirkjunnar um djöful- inn, eins og kemur fram í þjóðtrúnni. En afl og kraftur hins illa lét þó oftast í minnipokann fyrir margvísum klerkum og hvítagaldri þeirra. Á miðöldum er vald liins vonda ekki á neinn hátt hættulegt guði, og kuklarar, sem stunduðu svarta kúnst, voru álitnir varhugaverðir, en hinn hvíti galdur kirkjunnar var talinn sterkari. Á síðari hluta 15. aldar var prédikunar- starf svartmunka tekið að bera árangur meðal alls almennings. Þeir höfðu nánast samband við almenning af þjónum kirkj- unnar og kynnast ýmisskonar hjátrú og hindurvitnum sem enn lifðu í afskekktari byggðarlögum. Þeir tengja leifar ýmiss konar forneskju starfsemi djöfulsins og áttu sinn þátt í staðbundnum galdraof- sóknum. Svartmunkar mögnuðu mjög ótt- ann við djöfulinn meðal alþýðu og hann verður því hræðilegri sem líður á öldina. Galdramenn og nomir vom talin beinir 402
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.