Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Page 102
Tímarit Máls og menningar
áróðursmennirnir þrír: Hinir undirokuðu öðlast stéttarvitund.
UNGI FÉLAGINN: Hinn nýi leiðtogi atvinnuleysingjanna er ósvikinn sósíalisti.
Byltingarkröfur hans eiga sér varla nein takmörk, og krafturinn í málflutn-
ingi hans er hrífandi.
FYRSTIÁRÓÐURSMAÐUR: Er hann með ör undir hægra eyranu ?
UNGI FÉLAGINN: Já, þekkið þið hann?
FYRSTI ÁRÓÐURSMAÐUR: Ég þekki hann. Hann er útsendari kaupmanna.
UNGI félaginn : Því trúi ég ekki.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR ÞRÍR: Og á leiðinni hingað sáum við hermenn með fall-
byssur, þeir héldu einsog leið liggur að ráðhúsinu. Ráðhúsið er gildra, og
þinn nýi leiðtogi atvinnuleysingjanna er falsari.
UNGI FÉLAGINN: Nei, hann er atvinnulaus og kennir til með atvinnuleysingj-
unum.
Atvinnuleysingjarnir geta ekki beðið og ég
Get ekki beðið
Eymdin er svo útbreidd.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR ÞRÍR: En það eru of fáir búnir til baráttu.
UNGI FÉLAGINN: Þjáningar þeirra eru óskaplegar.
áróðursmennirnir þrír: Það er ekki nóg að þjást.
ungi félaginn: Þeir vita: að ógæfan vex ekki einsog líkþrá á brjósti manns;
að örbirgðin dettur ekki einsog tígulsteinn af þökunum; heldur eru ógæfa
og örbirgð mannaverk; skorturinn er tilreiddur þeirra vegna en kveinstaf-
ir þeirra eru étnir sem ábætir. Þeir vita allt.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR ÞRÍR: Vita þeir hve landsstjórnin hefur mörg herfylki?
UNGI FÉLAGINN: Nei.
ÁRÓðursmennirnir þrír: Þá vita þeir næsta lítið. Hvar eru vopn ykkar?
UNGI FÉLAGINN sýnir hendurnar: Við munum berjast með tönnunum og nögl-
unum.
ÁRÓðursmennirnir þrír: Það kemur til Iítils. Þú sérð einvörðungu volæði
hinna atvinnulausu, en ekki volæði þeirra sem vinna. Þú sérð einvörðungu
borgina, en ekki bændurna úti á landinu. Þú lítur einvörðungu á hermenn-
ina sem afl til kúgunar og ekki sem kúgaða vesalinga í einkennisbúningi.
Farðu því til atvinnuleysingjanna, afhjúpaðu útsendara kaupmannanna og
ráðagerð hans um að taka ráðhúsið með áhlaupi og fáðu þá með fortöl-
um til að taka þátt í mótmælagöngu verkamanna úr iðjuverunum, og við
munum reyna með fortölum að fá óánægðu hermennina sem hafa verið
292