Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Page 104
Tímarit Máls og menningar
ÁRÓðursmennirnir þrír: Við vitum að ráðhúsið er fullt af hermönnum. En
jafnvel þó þar væru engir til varnar, að hvaða notum kæmi okkur ráðhúsið,
ef járnbrautarstöðvarnar, símstöðvarnar og herbúðirnar eru í höndum
landstjórnarinnar? Þú hefur ekki sannfært okkur. Farðu því til atvinnu-
leysingjanna og sannfærðu þá um þeir megi ekki láta einir til skarar skríða.
Nú gerum við þá kröfu til þín í flokksins nafni.
UNGI FÉLAGINN:
En hver er flokkurinn ?
Býr hann í húsi með síma?
Eru hugsanir hans duldar, ákvarðanir hans ókunnar?
Hver er hann ?
ÁRÓÐURSMENNIRNIR ÞRÍR:
Við erum hann.
Þú og ég og þið — við öll.
í klæðum þínum leynist hann, félagi, og hugsar í höfði þínu.
Hvar sem ég bý er hans hús, og hvar sem á þig er ráðizt, þar berst hann.
Sýndu okkur veginn sem við skulum ganga, og við
Munum ganga hann einsog þú, en
Gakktu ekki án okkar rétta veginn
Án okkar er hann
Villugata.
Stíaðu þig ekki frá okkur!
Okkur getur skj átlazt og þú kannt að fara með rétt mál, sem sagt
Stíaðu þig ekki frá okkur!
Að stutti vegurinn sé betri en hinn langi því fær enginn neitað
En þó einhver þekki hann
Og megnar ekki að vísa okkur á hann, hvað dugir honum þá réttsýnin?
Vertu réttsýnn við okkur!
Stíaðu þig ekki frá okkur!
UNGI FÉLAGINN: Ég fer með rétt mál og því get ég ekki látið undan. Ég sé
með mínum eigin augum að eymdin getur ekki beðið.
STJÓRNARKÓRINN:
LOFSÖNGUR UM FLOKKINN
Hinn einstaki hefur tvö augu
294