Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Side 147
Upphaf prentlislar á Austurlandi
Ólafssonar sé tekin til starfa á Eskifirði og hafi blaðinu aðeins borizt fyrsta
tölublað hins nýja blaðs.
ísafold segir 23. marz 1877, að Jón Ólafsson hafi þann vetur verið í Kaup-
mannahöfn að útvega sér prentsmiðju, og ætli hann að setjast að með hana
á Eskifirði, „og byrja þar á nýju blaði stóru í sumar, er á að heita Skuld“.
Þann 16. júní 1877 segir Isafold, að fyrsta tölublað Skuldar hafi komið
út á Eskifirði 8. f. m. Síðan segir orðrétt: „Blaðið er með sama sniði og
Isafold, en kemur optar út (40 nr. um árið) og kostar 4 kr. árg. með dálítilli
nýársgjöf (kvæðasafni), sem því á að fylgja. Að því er marka má af fyrsta
númerinu — meira hefir eigi hingað borizt enn — virðist blaðið líklegt til
viðgangs og góðra þrifa. Það er snoturt útlits og laglegt að efni, orðfærið
betra en algengt er í hinum hlöðunum, fjörlegt en þó látlaust, og er það
undir eins mikill kostur.“
Þessar voru viðtökurnar, sem Skuld fékk í höfuðstaðnum, og var ekki
ástæða til að kvarta undan þeim. Raunar höfðu sunnanblöðin ekki ástæðu
til annars en að taka Skuld vel. Af ástæðum, sem þegar hafa verið raktar,
þurftu þau ekki svo mjög að óttast samkeppni, og raunar var líklegt, að
Skuld mundi gera norðanblöðunum meiri skráveifu, bæði austanlands og
norðan. Því mátti fremur vænta kaldra kveðja úr þeirri átt.
Þar er þá fyrst til að taka, að Norðlingur minnist ekkert á upphaf Skuldar.
Ekki er auðvelt að geta sér til um, hvernig á þeirri þögn hefur staðið, en
athuga verður, að Norðlingur var yngstur íslenzku blaðanna og átti í harðri
samkeppni við Norðanfara, og má því ef til vill ætla, að ritstjóri Norðlings
hafi viljað sitja á sárs höfði við Jón Ólafsson, a. m. k. fyrst í stað. Hitt er
aftur á móti annað mál, að síðar áttu Norðlingur og Skuld eftir að lenda í
heiftarlegum deilum. Þær deilur voru þó aðallega stj órnmálalegs eðlis og
koma því þessu máli ekki við.
Norðanfari tók aftur á móti öllu meiri kipp við upphaf Skuldar. í 53.—54.
tbl. 1876 segir eftir austanpósti: „Herra Jón Ólafsson, Alaskafari, kvað hafa
ætlað sér í haust til Kaupmannahafnar að útvega sér prentsmiðju og koma
með hana að vori á Eskifjörð.“
I 37.—38. tbl. 1877 er á hlutlausan hátt sagt frá því, að í byrjun maí hafi
prentsmiðja Jóns Ólafssonar verið komin á Eskifjörð og hann farinn að láta
prenta Skuld.
Þessu næst er Skuldar lítt sem ekki getið í Norðanfara fyrr en í 13.—14.
tbl. 1878, en þar birtist alllöng grein, sem undirskrifuð er N og ber yfirskrift-
ina „Skuld“. í upphafi ritar greinarhöfundur í gamansömum tón um nafn-
22tmm
337