Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Side 155

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Side 155
Upphaf prentlistar á Austurlandi í manntalsbók Suður-Múlasýslu 18771 er skráður sem skattgreiðandi Jón Ólafsson frá Alaska. Þetta manntalsþing var háð 16. júní 1877, stuttu eftir að Skuldarprentsmiðj a hóf störf. Skattur sá, sem á Jón var lagður, nam 29 aurum. Ekki var það hár skattur, en sú staðreynd, að Jón var í tölu skatt- greiðenda sýnir, að hann hefur ekki verið talinn blásnauður. Virðist mér sem þetta bendi til þess, að Jón hafi í upphafi getað lagt eitthvað af mörkum til prentsmiðjurekstursins, þótt vart hafi það verið mikið. Einnig má vera, að stuðningsmenn Jóns á Austurlandi hafi lagt fram eitthvert rekstrarfé í upp- hafi. En hverjar voru þá tekjur Skuldarprentsmiðju? Þar ber fyrst að nefna á- skriftargj öld Skuldar. Svo sem áður hefur verið vikið að, var innheimta þess- ara gjalda tiltölulega auðveld í næsta nágrenni við útgáfustaðinn, enda sá þá ritstjórinn oftast sjálfur um hana. En þegar um var að ræða innheimtu í fjar- lægum sveitum, fór málið að vandast. Yfirleitt var skipulagið þá á þann veg, að valinkunnir menn í viðkomandi sveitum gerðust útsölumenn blaðsins, svo sem fyrr var frá skýrt. Auk þess að sjá um dreifingu hlaðsins sáu útsölumenn- irnir einnig um innheimtu áskriftargjalda innan síns umdæmis. Einnig tíðk- aðist, að menn greiddu áskriftargj öldin ýmist í vörum eða peningum til verzl- ana, sem síðan komu gjöldunum til skila. Það hlaut að vera áríðandi fyrir fjárhag hvers hlaðs að afla því sem flestra áskrifenda. En þegar kaupendurnir voru fjarlægir útgáfustað, vildi oft dragast úr hömlu að þeir greiddu áskriftargj aldið. Liggur í augum uppi, að slíkir kaupendur voru lítt arðsamir og margir raunar fj árhagslegur baggi á blaðinu. Jón Ólafsson var auðvitað ekki undanþeginn þeirri kvöð að þurfa að kljást við óskilvísa kaupendur, enda kvartar hann sífellt undan óskilvísi. Er þá ýmist, að Jón reynir að vekja menn til meðaumkunar með sjálfum sér, eða hann hótar að birta í blaði sínu nöfn þeirra, sem ekki standi í skilum, öðrum til viðvörunar. En allt kom fyrir ekki, og alltaf voru nokkrir, sem ekki horg- uðu, enda voru óinnheimt áskriftargjöld löngum svo sem árlega afskriftir af íslenzkum blöðum. Annar megintekjustofn Skuldar voru auglýsingar þær, sem í blaðinu birt- ust. Verð auglýsinga fór eftir stærð þeirra og því rúmi, sem þær tóku í blað- inu. Skuld flutti margskonar auglýsingar, en mest bar þó á auglýsingum frá verzlunum, ýmsum tilkynningum opinberra embættismanna, þakkarávörp- um og auglýsingum eftir töpuðum munum. Má telja, að auglýsingar hafi orð- ið Skuld drjúg tekjulind, en hafa ber í huga, að á þessum tíma gögnuðust aug- lýsingar þó aðeins þeim lesendum, er bjuggu nærri útgáfustað blaðanna. En 345
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.