Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 42
Tímarit Máls og menningar tilraunir um expressjónískan eða surrealískan stíl í skáldsögunni, sem urðu ósjálfrátt efni í nútímaskáldsögu og eru í rauninni af sama toga spunnir og hugleiðingar í „Hel“ og „Bréfi til Láru“ f þeim hverfur hin hlutlausa frásögn næstum því alveg, atburðarásin víkur fyrir hugleiðingum, og stíllinn verður háinnhverfur. Hann nálgast með köflum mjög það, sem Englendingar myndu kalla „the stream of intellectual consciousness“. Með þessu vil ég þá ljúka tilraun minni til að athuga lauslega nokkur atriði í gerð skáldverkanna þriggja. Margt er enn ósagt, en enginn tími til þess. Eru þessi verk nútímaleg? Ég held það örugglega. En af hverju hættu þá höf- undar þeirra við þessa stefnu í skáldskap sínum og fóru að skrifa í meira eða minna hefðbundnum stíl, eða hættu alveg að hirta skáldverk? Það er margt persónulegs eðlis í síðari þróunarsögu þessara skálda, og það er einnig senni- legt, að þessi verk þeirra hafi verið allt of nútímaleg miðað við aðrar ís- lenzkar samtíðarhókmenntir, enda þótt auðvelt sé að sanna, að þau hafi haft sína þýðingu fyrir þróun nútímabókmennta á íslandi, einkum hvað snertir hugsunarhátt og mál. Ég vil bara benda á eitt, sem mér finnst skipta mestu máli um eðli íslenzkra nútímabókmennta. Það var viðleitni þessara skálda til að gera sér grein fyrir vandamálum mannsins í heiminum og finna einhver lögmál í þeim, sem reyndist vera sterkasti þáttur í verkum þeirra miðað við íslenzkar bókmenntir þar á eftir. En við vitum, að þau skáld sem talin eru mestu módemistar, eru löngu húin að gefast upp á þessu sviði, og reyna að- eins að grípa sundurleit brot tilverunnar, án þess að leita að lögmálum þeirra og hugmyndakerfi. Þangað á stíll þeirra rætur sínar að rekja, hvort sem stíll- inn er innhverfur eða í hæsta lagi hlutlægur. En þessi algera uppgjöf á hvers- konar hugmyndakerfi er einmitt helzta afleiðing þess, sem kallað er firring mannsins í nútímaþj óðfélagi. Ég hygg, að á íslandi, eins og það er — fá- mennt en víðlent, með lýðræðislegum venjum í félagslífinu, með almennum kunningsskap við helztu valda- og embættismenn, hafi þetta aðaleinkenni nú- tímamannsins lengi verið hulið. Firringarkenndarinnar urðu menn fyrst greinilega varir fyrir tilverknað framandi utanaðkomandi valds. Þetta var ástæða fyrir aukinni tilhneigingu til nútímastefnu í íslenzkum bókmenntum eftir síðari heimsstyrj öld. j 120
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.