Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 76

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 76
Tímarit Máls og menningar Það er þannig vafasamt að einstaklingur geti lengur með nokkrum rétti unnið til Nóbelsverðlauna í náttúruvísindum. Nú er það einmitt alsiða, að hópur manna frá ýmsum vísindagreinum, starfar saman að lausn ákveðins verkefnis, og vel getur verið um að ræða samstarf rannsóknarstofnana í tveimur, þremur eða fleiri löndum. En ef við segjum, eins og hér hefur verið gert, að vísindarannsókn sé könnun þess óþekkta, er þá til ákveðin aðferð til að gera uppgötvanir? Því verður að svara neitandi. Til þess að finna eitthvað nýtt, verða menn að rekast á það, sjá það, fá vitneskju um það af reynslu sinni eða láta sér detta eitthvað í hug, ef svo mætti segja. Auðvitað er sannleikurinn jafngóður hver sem á hann rekst, en hið nýja sem menn telja sig hafa fundið verður ætíð að standast próf vísindalegrar tilraunar. Kennsla í vísindum Kennsla í náttúrufræðum hefst í gagnfræðaskóla, en þó varla í alvöru fyrr en í stærðfræði- og náttúrufræðideildum menntaskólanna. í menntaskólum eiga menn að fá undirstöðuþekkingu í flestum greinum náttúruvísindanna, þ. e. a. s. stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, líffræði, stjörnufræði, jarðfræði. Ég hygg, að þessar greinar séu of aðskildar í námi, eins og hver í sínu hólfi, ef svo mætti segja. Þessar greinar hafa að talsverðu leyti sameiginlega undir- stöðu og þurfa að taka mið hver af annarri. Mætti í fyrstu kenna þær sem eina grein — sem almenn vísindi. Þessi almennu vísindi þyrfti að færa neðar í skólana hér, byrja jafnvel í efstu bekkjum barnaskóla og auka til muna slíka kennslu í gagnfræðaskól- um. Vel má vera, að einhverjar skóla- og fræðslunefndir eða ráð séu einmitt að athuga það. Eins og kunnugt er, eru það kennararnir sem ráða kennslunni að mestu. Þeir búa til bækurnar og segja fyrir um verkefni, sem nemendurnir fást við, og er kannski eðlilegt, að þeir, sem teljast hafa kunnáttu og reynslu ráði ferðinni — þeir eldri fræði þá yngri. Hér áður var siður að læra bækur utanað — annað var ekki kallað að kunna. í barnaskólum þótti sú aðferð sjálfsögð, e. t. v. hafa duglegir nemend- ur einmitt fundið hana upp sjálfir. 154
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.