Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Blaðsíða 76
Tímarit Máls og menningar
Ég bið' að heilsa góðura löndum, þar á meðal skáldinu Hannesi1 frænda
þínum. Mikið hefði sr. Gunnar glaðzt af honum. Aðeins vil ég hann vari
sig á Drachmann,2 þó mikið skáld sé — inér finnst hjór og ostrubragð (?)
að hans póesí - sums staðar.
Guð blessi þig alla œvi!
Þ. elsk. vinur,
Matth. Jochumsson.
[Kaupmannahöfn] 13. jan. 1883.
Elskaði vinur minn!
Þökk fyrir bréfið d. 4. nóv. og velvild og vinsemd við mig. Satt er það,
annríkt á ég og margir biðja mig, svo ég sé varla út úr því, er ég á að gjöra;
en mér er ánægja að verða við bón þinni og vil gjöra það sem þú baðst
mig.
Ég þorði ekki að láta byggja kk3 í Noregi. Norðmenn eru svo prettóttir,
og ég get ekkert litið þar eftir hvernig erfiðið er gjört. Ég hef því afráðið
að láta gjöra hana hér. Hér get ég sjálfur litið eftir að allt sé vel af hendi
leyst, - ég er gamall kksmiður — og svo hef ég fengið mann, sem er áreiðan-
legur og mörg hús hefur smiðað fyrir mig. Það er Bald.4
Við erum orðnir einugir um hvernig kk skuli vera, og sendi ég þér mynd
af henni hér með. Mér þykir hún mikið lagleg. Þegar þarf að spara peninga,
þá er ekki hægt að skreyta mikið, en við Bald erum ekki sammála ennþá
um verðið. Hann reiknar hana tilbúna hér með þiljum og klæðning og papp-
þaki 4000 kr. Það þykir mér of dýrt, meira en 3500 kr. vil ég ekki gefa, í
hið minnsta máttu reiða þig á, að ég reyni að fá kk svo ódýra sem hægt er
og mér þykir sanngjarnt, þegar ég er búinn að ganga í gegnum allan reikn-
inginn. Ég hef samið um að fá lánað nokkuð af trjáviðinum með því að
ábyrgjast sjálfur borgunina þar til í ágúst. En nokkuð af trjáviðinum, allt
smíði, gler, farfa, saum, þakpapp þarf að borga strax, og bið ég þig því að
sjá um að senda mér minnst 2000 kr., - meira ef hægt er - með marzferðinni
og sjá um að peningar verði til í sumar, þegar ég þarf að brúka þá. Ég skal
með ánægju hafa umsjón og ómök fyrir þig borgunarlaust, en peningaútlát
1 Hannes Hafstein, systursonur Tryggva Gunnarssonar.
2 SkáldiS Holger Drachmann.
3 kk er gömul skammstöfun fyrir „kirkju".
4 F. Bald, danskur trésmíðameistari, sem m. a. stjórnaði byggingu alþingishússins
1880-1881.
282