Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Blaðsíða 113

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Blaðsíða 113
fræðiriti að þær styðjast við endurminn- ingu aldraðs manns en ekki skjalasafn eða tilgreindar heimildir. En því ítarlegar er vikið að því sem í loftinu Id um daga höf- undarins og því betur er lýst viðhorfum, hugsunarhætti og þeim tímamótum, í menningarsögulegu tilliti, sem hann lifði. Honum er mikið í mun að allir þeir sem frá er sagt njóti sannmælis og að frásögn- in verði ekki hlutdræg. Margvíða segir hann frá deilum sem hann sjálfur átti hlut að, en gerir sér far um að endurminning- arnar verði ekki deilurit á neinn hátt. Það vekur ekki síst athygli lesandans hversu hann leggur sig fram um að hrósa þeim mönnum sem hann þó hefur átt misjöfn viðskipti við. I þeim hópi ber að nefna brytann frá Möðruvöllum, en við hann áttust þeir skólapiltarnir, og um fram allt séra Arnljót Ólafsson, en þrátt fyrir skær- ur þeirra í millum ber Friðrik mikið lof á hann. Þegar minningarnar eru festar á blað er langt um liðið síðan þeir öttu kappi norður á Langanesi og víður vegur farinn þaðan. Við lesturinn setur að manni þann grun að Friðrik vilji í rauninni bera blak af Arnljóti, látnum merkismanni. Hið sama verður þó ekki sagt um séra Jón Bjarnason. I garð hans og þeirrar kirkju- hreyfingar sem hann leiddi gætir kala og nokkurrar þykkju, og má vera að því valdi að skemmra var um liðið síðan leiðir þeirra bar saman, enda ágreiningsefnin enn ofarlega á baugi. Líklega veldur hér og nokkru að verkinu var ekki að fullu lokið þegar Friðrik féll frá: atburðarásin ekki dregin saman til niðurstöðu. Endurminningum Friðriks Guðmunds- sonar lýkur á því móti að hann gerir grein fyrir trúarskoðunum sínum og afstöðu í safnaðadeilum þeirra Vestur-íslendinga. Svo er að skilja að fyrir hafi legið að taka þá til við önnur efni þótt getgátur einar viti hver voru. Það væri ofmælt að Vmsagnir um bœkur segja endurminningamar enda í miðjum klíðum, og alla vega setti sá húsbóndi punktinn á sem okkur byrjar ekki að þrátta við. Eins og sj£fsævisagan liggur fyrir, ber hún það með sér að hún var samin í köflum sem ætlaðir voru til birt- ingar jafnóðum, og þess gætir hér og þar í samsetningu og efnisskipan. Myndir minninganna renna upp fyrir blindum sjónum þessa gamla bónda, víða er farið harla hratt yfir sögu og margs getið sem ekki vinnst tóm til að rekja ítarlega. Það er þó afrek í sjálfu sér hve vel ætla má að Friðrik hafi tekist það sem hann setti sér frarnan af sögu sinni, að rifja upp og vekja upp minninguna um gamla ættland- ið, eins og það var, í hugum landa sinna vestra. Það sem telja má að einkum veki at- hygli lesanda þessa rits er sú óhemjulega efnisauðlegð sem það býr yfir. Endur- minningar Friðriks Guðmundssonar eru hrein náma þeim manni sem vill kynna sér þjóðháttu, búskaparlag, menningu, lífskjör og hugsunarhátt á Islandi fyrir öld. Hér ganga fram ótaldir menn sem frægir hafa orðið á spjöldum sögunnar, kunnugur segir hér frá þeim Kristjáni Fjallaskáldi og Jóni Trausta; Valdimar Ásmundssyni er lýst og nákunnugur segir frá Jakobi Hálfdanar- syni og Benedikt Sveinssyni, og eru þá fáir einir taldir. Skopsögurnar af Benedikt eru hunang, eða ætli það hafi ekki verið hátíð að hlýða á séra Sigurð í Vigur leita sér liðs á Þingvallafundi með því að kyrja Lallabraginn fræga yfir ókunnugum mönn- um? Áður var getið mn séra Arnljót enda er hann ein af aðalsöguhetjum Friðriks. Það er erfitt að vita hvar staðnæmast skal þegar rifjuð eru upp nokkur af þeim ótölulegu efnisatriðum sem þetta auðuga rit hefur að geyma. Einstökum héruðum og bæjum er lýst svo að lifandi verða og dreg- in er upp skemmtileg mynd, fyrir okkur 319
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.