Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Blaðsíða 77
Kirkjubygging Matthíasar Jochumssonar í Odda
vil ég vera laus við. Ég á í þetta skipti óhægt með það, því ég mátti borga
mörg þúsund kr. fyrir síldarfél. þau 3, er ég er fyrir;1 þau höfðu stóran
kostnað en engan afla í sumar.
Kirkjuefnið allt verður nálægt 14 lestir. Ég hef talað við Muus og hef
nokkra von um að hann flytji með Sylfiden timbrið til Eyrarbakka fyrir
sanngjarna borgun. Ég skal reyna að fá kapt. til að fara með það inn á sand-
inn. Einkum getur þú líka verkað talsvert sjálfur, þegar þú talar við kapt.
og móttökumann skipsins, E[inar] borgara?2 og semur við þá um visst
verð, sem þú ekki átt að borga, heldur sóknarbændur, sem eru skyldir til
að flytja viðinn. Það er ekki séð að þeir vilji borga 2-300 kr. fyrir þá leið.
Ég má fullyrða við þig, að ómögulegt er að fragta skip, danskt eða norskt, á
annan stað en löggilta höfn. Assuransinn3 fæst ekki með öðrumóti en skipið
komi fyrst á löggilta höfn.
Jakob sendi mér bréf þitt, en enga leiðbeining frá sér, en það gjörði ekki
til, ég get eins gjört það og hann. Ég vildi heldur hafa járnþak, en Bald vill
vegna verðs og flutnings heldur pappþak, og verður það líklega svo. —
Það gleður mig að þér líður allvel og hefur talsvert undir höndum; en
nú kemur kk byggingin, sem mun koma við þig sé hún (kk) ekki því ríkari.
Ekki vekur mér það minnstu áhyggju deilur J. Ól., mér er fullkomlega sama
hvað hann segir.
Ég vona eftir linu frá þér sem fyrst og sjá þig í sumar. Blað og tími búið.
Hjartans kveðja frá þínum Tryggva.
Lestu í málið, skrifað í mesta flýti.
[Kaupmannahöfn] 28. febr. 1883.
Kæri vinur!
Ég skrifaði þér í vetur og sendi teikning af kirkjunni, sem átti að kosta
3500 kr. hér á staðnum tilbúin. Ég hef ekki getað ragað hana niður úr þessu
við Bald, en í þessu sama verði ætlar hann að leggja meira til, svo sem gólf
og fleira, sem ekki var áður ráðgjört.
Að fragta skip til Eyrarbakka með trjávið auk kk til sölu þykir ófært.
Fragtir eru dýrar nú, einkum þangað. Lefolii4 hefur dregizt á að flytja dá-
1 Vegna hafísa eystra og einkum nyrðra brugðust síldveiðar nær algerlega sumarið 1882.
2 Einar Jónsson kaupmaður á Eyrarbakka, faðir Sigfúsar tónskálds.
3 Tryggingin.
4 Lengi helzti Eyrarbakkakaupmaður.
283