Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 33
Mannsbarn á myrkri heiði unz óskakraftur minn endurrís úr ösku ljóðs míns og hjarta, úr mistri og sorta skín svanaflug og sólin gistir mig aftur. Eldurinn er sterkasta andstæða myrkursins í „Mér dvaldist of lengi“, og það er hann sem á að lýsa mannsbarninu út úr því. Hann gegnir margvíslegu hlutverki i kvæðinu, og merkingarleg — og táknræn — skírskotun hans er mjög víð. Ein gæti verið til skáldskaparins. Ferðamanninn sem kveikir eld á dimmri heiði vil ég sjá sem mynd skáldsins sem yrkir ljóð í dimmri veröld. Þannig kemur i þessu ljóði fram trú á mátt skáldskaparins í leit mannsins að sjálfum sér í firrtum heimi, og þar með einnig á hlutverk hans í baráttunni gegn þjóðskipulagi sem vill slíkan heim. Fyrir Snorra eru heim og sjálfumleiki það sama. Þetta minni, sem við höfum séð að felur í sér sköpunina, náttúruna, upprunann og dauðann, tengir hann í einu ljóðinu af öðru við landið, við ísland. í „Land þjóð og tunga“ (bls. 70) lítur hann á þetta þrennt sem eitt og segir: Þú átt mig, ég er aðeins til í þér I samræmi við þetta er ljóðstíll Snorra. Tvær fyrstu ljóðabækurnar koma út um það leyti sem formbyltingin svokallaða er að ryðja sér til rúms í íslenskri ljóðagerð. Sem önnur formbyltingarskáld rís Snorri gegn hefðinni, en hann hafnar henni ekki eins og svo margir aðrir. I staðinn leitast hann við að laga hana að ljóðum sínum, þannig að rím, stuðlar og hrynjandi verði þar merk- ingarbærar einingar. Viðhorf hans er því á vissan hátt gagnstætt viðhorfi Steins Steinars, sem lýsti því yfir í frægri setningu að hið hefðbundna ljóðform væri nú loksins dautt.10 Ljóðstíll Snorra er þess vegna enginn „meðalvegur í formbreyt- ingu“,“ heldur sprottinn af grundvallarlífsviðhorfi hans. Með því að byggja á hefðinni og endurskapa hana tekst honum að tjá það sem kalla mætti íslenska vitund. Vegna óska sinna um fegurð, samræmi og samkennd eru ljóð hans andóf gegn firringu og upplausn þjóðfélagsins. Gildið sem slík ljóð hafa umfram hin opnu baráttuljóð er að þau halda lifandi með okkur hugmyndinni um nauðsyn betri heims og fegurra mannlífs. 151
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.