Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Side 86
Tímarit Máls og menningar — En marxísk kenning er afar handhægt tæki og einfalt og gerir ráð fyrir að vandamál mannkyns verði leyst á teknískan máta. Lenín og aðrir valdhafar í Sovétríkjunum hugsuðu t. d. allir teknískt. Allt var flokkað, einfaldað og reiknað út. Eg er sannfærð um að hefði Lenín verið kona og sömuleiðis það harðsnúna lið sem hann hafði með sér, hefði risið upp í Sovétríkjunum allt annað þjóðfélag en þar er nú. — Meðal þeirra sem sögðu skilið við marxismann um þetta leyti eru Maria Bergom-Larsson, þekktur bókmenntafræðingur. Hámarki náði þetta uppgjör með umræðum og ritdeilum i Dagens Nyheter sumarið 1979 en þá kom út í annað sinn bók Elin Wágner, Váckarklocka, og skömmu áður fyrri hluti ævisögu hennar eftir Ullu Isaksson og Erik Hjalmar-Linder. Síðari hlutinn kom út í haust. Váckarklocka var fyrst gefin út 1941 en náði þá ekki eyrum margra. Nú eru konur í Svíþjóð að endurvekja kenningar Elinar Wágner um forna kvennamenningu og mæðraveldi. Einnig nýtur boðskapur hennar um afvopn- un og frið og um umhverfisvernd sívaxandi vinsælda bæði meðal karla og kvenna. Þegar hér er komið sögu finnst Evu rétt að fara að víkja talinu að hinum týnda kvennaheimi og kvennamenningu og hvaða afleiðingar það hefur fyrir konur að vera búnar að glata sinni eigin sjálfsmynd. — Þegar ég var að safna efni í ritgerð mína um konur eftir stríð átti ég viðtöl við fjölmargar mæður og dætur i Gautaborg. Þá komst ég að raun um það að málið sem ég notaði, hefðbundið akademískt mál, dugði alls ekki til að lýsa raunveruleika þessara kvenna. I kvennarannsóknum, sérstaklega hinum fyrstu, kemurgjarnan fram hvað konum liði illa, hvað þær hafi lág laun, gamlar konur og konur utan af landi fái verstu störfin, aðeins fáar og velmenntaðar konur séu í góðum og vellaunuðum störfum o. s. frv. Víst er allt þetta satt, konur hafa litla menntun og lág laun, en í þeirra menningarheimi gilda að hluta til önnur lögmál en í þessum venjulega sýnilega heimi. Verðmætamatið er annað og það verður ekki mælt á mælikvarða karlveldis né því lýst á vísindamáli. Þessi verðmæti eru leifar af kvennamenningunni, sem er ósýnileg og eðlisólík karla- menningu tæknisamfélaganna. Ennþá skilja konur verðmætin sem fólgin eru í hollum mat, heilnæmu vatni, traustum tilfinningatengslum við annað fólk, góðu heimilislífi, heilbrigðum börnum o. s. frv. Raunverulegum lifsgæðum. „Eymdarrannsóknirnar" sem ég nefni svo, þ. e. um það hvað konur eigi bágt, ná ekki yfir þennan þátt i lífi kvenna. Samt eru það þessi atriði sem oftar en ekki eru aðalinntakið í lífi kvenna. Kvennamenningin er ekki bara eymdin uppmáluð eins og oft kann að virðast vegna þess að allt sem konur gera er talið ómerkilegt 204
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.