Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 87

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 87
Það er menning . . . og lítils virði. Karlamenningunni er stillt upp sem fyrirmynd og eftir henni eiga konur að keppa. Þetta er t. d. hugmyndafræði Simone de Beauvoir og fjöl- margra málsvara jafnréttis og kvenréttinda, meira og minna ómeðvitað þó. — En nú var ég komin á sporið. Eg skildi að kvennamenningin er mikils virði, merkileg og margbreytileg og að konur eru ekki aumar og óvirkar heldur duglegar og sterkar. Sem betur fer hefur tæknihyggjunni ekki tekist að ganga endanlega af kvennamenningunni dauðri þó að nærri henni hafi verið höggvið. Hið sama er að segja um sjálfsmynd kvenna. Hún hefur um langan aldur verið að fölna og slævast og vansæld margra kvenna nú stafar að minni hyggju ekki hvað síst af skorti á heilbrigðri og sterkri sjálfsmynd. — Og síðan fór ég að velta málunum fyrir mér af enn meiri alvöru. Hvað hefur gerst með kvennamenninguna, með heimilin, með sjálf lífsskilyrðin? Hefur ekki alvarleg röskun átt sér stað? Ef svo er, hvenær hófst hún og hvernig hefur hún þróast? Svörin við þessum spurningum eru í huga mínum nokkurn veginn á þessa leið: — Núverandi tímaskeið í sögu mannsins hófst á endurreisnartimanum og er nú að renna skeiðið á enda. í upphafi þessa timabils tók verulega að raskast jafnvægið milli manns og náttúru. Karlar gerðu sig ekki lengur ánægða með að vera bændur og feður, heldur hófu þeir að brjótast burt frá náttúrunni, út í hið óþekkta. Þeir fundu lönd og álfur og brutu undir sig svokallaðar frumstæðar þjóðir. Jafnframt þessu taka þeir að lita á náttúruna sem óvin sem þurfi að sigrast á. Þar með hefst valdaskeið hvitra karla í veröldinni. Konurnar fylgdu ekki með í öllu þessu umróti. Þær voru skildar eftir heima til að halda heitum arninum fyrir húsbóndann þegar hann kæmi heim úr frækilegum ferðum. Þetta heim- ilisöryggi var körlum nauðsynlegt, þeir þurftu að hafa einhvern fastan punkt i tilverunni. Það veitti þeim kjark til að bjóða náttúrunni byrginn og níðast á henni. — Fram til þessa hafði rikt visst jafnvægi milli karlastarfa og kvennastarfa (karla- og kvennamenningar). Vissulega var þjóðfélagið karlveldissinnað (patriarkalskt) en þetta forna samfélag gat ekki verið einn dag án kvennanna. Þær einar réðu yfir þekkingu og kunnu þau störf sem samfélagið gat ekki án verið og hvort tveggja veitti það þeim öryggi, völd og virðingu. Þær höfðu því sterka sjálfsmynd og fengu daglega staðfestingu á henni alveg á sama hátt og karlar. Verksvið kvennanna i hinni fornu skipan var mjög rúmt. Það var ekki einvörðungu að þær væru virkar í framleiðslunni, gerðu allan mat og föt, væru í fjósi og á akri, heldur vissu þær allt sem vita þurfti um börn og barnauppeldi og þær einar þekktu og kunnu að fara með læknisdóma bæði fyrir menn og 205
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.