Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Side 129
Umsagnir um bœkur ingarhætti, sem hefir breiðzt ört út meðal sálfræðinga, síðan tölvan kom til skjal- anna. Það er skiljanlegt, að vísindamenn taki fegins hendi tölfræðilegum aðferðum við túlkun rannsókna sinna, þar sem þær eiga við og tölvan getur leyst þá undan miklu og tímafreku erfiði. Samt má það ekki gleymast, að vandinn felst ekki í út- reikningunum, heldur i yfirfærslu sál- rænna staðreynda á talnaform. En ekki er allt sálrænt ástand, sem við þykjumst skynja, jafn vel fallið til vélrænnar töl- fræðigreiningar, t. d. tilfmningasamband móður við barn sitt. Annars getur vafi sálfrasðilegra álvktana dulizt bak við ná- kvæmni talnanna. Þessar ábendingar mínar mega ekki skyggja á það, að bók Sigurjóns flytur okkur mikla nýstárlega þekking. Hún á brýnt erindi til allra þeirra, sem láta sig uppeldiskjör barna einhverju varða, bæði foreldra og kennara. Höfundur sýnir með sterkum rökum, að leiðin til menntunar stendur ekki öllum unglingum jafn opin í raun, þótt svo eigi að heita. Stéttaskipting þjóðfélagsins verður varla afmáð, að minnsta kosti er það ekki á valdi skólans. En hann hefir tök á og honum ber að draga sem mest úr þeirri mismunun, sem hún veldur, svo að hvert barn fái að njóta hæfileika sinna og þroska þá í námi, i hvaða stétt sem foreldrar þeirra standa. Um það er bók Sigurjóns Björnssonar þörf og vonandi áhrifarík áminning. Fram- sæknir skólamenn og ungir kennarar, sem nú fá menntun sína hér á landi við tvo háskóla, þurfa að kynna sér rannsóknar- niðurstöður hans rækilega. Frágangur bókarinnar er vandaður, töflum og línuritum haganlega skipað i texta. Prentvillur eru fáar að því er eg gat séð án þess að leita þeirra. Eg rakst á innan við 10 stafvillur, sem leiðréttast í lestri. Hér skal þó bent á bls 21, þar sem er meinleg tvitekning og bls. 73,9. 1. a. o. þar sem lesanda er vísað á mynd 4, en á að heita mynd 2. í töflunum eru stafvillur ekki auðsénar, en eflaust má treysta vand- virkni höfundar, að þær hafi verið svo vandlega lesnar, að þar standi allt stafrétt. Bókin er höfundi og útgefanda til hins mesta sóma. Matthías Jónasson. Athugasemd — og svar í bréfi sem útgáfunni hefur borist frá Gunnari Stefánssyni er beðið um að eftir- farandi athugasemd sé birt í Tímaritinu. „I fyrsta bindi ritsafns Jóhanns Sigur- jónssonar sem Mál og menning gaf út 1980 segir svo í formála umsjónarmanns, Atla Rafns Kristinssonar, þar sem hann gerirgrein fyrir bréfum Jóhanns (bls. 10): „Ekki hefur tekist að hafa upp á sumum bréfa Jóhanns sem sannanlega voru varð- veitt til skamms tíma, svo sem bréfum til móður skáldsins og Þórðar Sveinssonar yfirlæknis." Vegna þessara orða skal les- endum ritsafnsins á það bent að sam- kvæmt frásögn sonarsonar Þórðar eru sex bréf Jóhanns til hans varðveitt og hafa þau öll verið prentuð. Sjá Hrafn Gunnlaugs- son: Merkasta skólaskáldið. Æskuljóðjó- hanns Sigurjónssonar og nokkur kunn- ingjabréf. Samvinnan, 6,1969, bls. 56—59. I greininni eru tekin upp nokkur ljóð Jóhanns úr skólablaðinu Stella nova, sem 247
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.