Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 92

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 92
Tímarit Máls og menningar „Hversvegna eru lærðir menn ekki sósíalistar?" í Rétti 1931. Silja virðist lesa söguna þannig að það sé gott og blessað að sósíalískir menntamenn tali, segi frá draumum sínum um betra samfélag, en hverfi hins vegar á braut þar sem kemur til framkvæmda. Menntamanninum sé nóg að skrifa bækur þar sem Silju og öðrum „opinberast allur sannleikurinn um þjóð mína“ eins og hún orðar viðhorf sitt til Sölku Vólku. Svona einfalt var málið ekki fyrir þeim sem skrifaði Alþýðubókina og Sölku Vólku. Það er ástæðan fyrir því að hann er svona kaldhæðinn á köflum um Arnald. Það er von mín að þótt Silja virðist „afpróblematísera" Arnald og reyna að gera úr honum dýrling, þá sé ekki þar með sögð sagan um hugmyndir hennar um stöðu sósíalískra menntamanna. Því miður festist sú meinloka í Silju að mér væri eitthvað illa við sögupersónuna Arnald. Ætti nú að vera ljóst orðið að svo er ekki, — né heidur er mér illa við aðrar persónur í skáldsögu þessari. Silja vitnar í orð mín þar sem ég vek athygli á þeim atriðum sem sýna að skáldið hefur viljað gefa kost á neikvæðri mynd af sósíalíska menntamanninum. Tilvitnunin er hins vegar ekki það löng að fram komi svofelld orð mín: „Á hinn bóginn er í sjálfu sér alveg hægt að rökstyðja að hann hafi hegðað sér rétt“ o. s. frv. Ef Silja hefði gætt að þessum orðum hefði hún kannski ekki gert hina „hörðu árás“ sína. Salka Valka er bók full af efasemdum, einkum varðandi sósíal- ismann og hlutverk menntamannsins. Kjörorð sögunnar gætu einmitt verið setningin „Breytileiki lífsins er sannleikurinn", sem Silja velur sér að greinarheiti. Efunargirni skáldsins er ein helsta orsök þess hve Arnaldur er siðferðislega tvíræður. Efahyggjan er rúmfrekari í Sölku Völku en í Alþýðubókinni, enda má segja að í skáldsögunni séu hugmyndir úr ritgerðum Halldórs endurmetnar á frjálslegan hátt eins og formið veitir svigrúm til. I greinarlok þykir mér Silja heldur betur fara út af sporinu. Fyrst gerir hún ómerkilegt orðalagsatriði varðandi kossa að umtalsefni. I sögunni segir að vafamál sé hvort Salka kunni að kyssa, en bókmenntafræðingurinn tekur fram að þar með sé ekki sagt að það sé ekki hægt að kyssa hana. Ekki er víst að bókmenntafræðinni sé mikill ávinningur í þessari athugasemd. En á bak við þetta kann að liggja hjá Silju sú aðdróttun að sjónarhorn mitt sé of karlbundið. Um þetta atriði er því til að svara að ég er að ræða málið frá sjónarmiði Arnalds, og þess vegna er orðalag mitt fullkomlega eðlilegt. Ástæðan fyrir því að ég fjalla einkum um Arnald og hans sjónarmið er ekki karlremba mín heldur að Arnaldur og höfundur sögunnar eru hliðstæðir um margt, og þess vegna má nota Arnald til að skilja Alþýðubókina betur. Eg er ekkert að reyna að hrinda Sölku úr hásæti höfuðpersónunnar, ef það er það sem Silja vinkona hennar óttast. Eg vona bara að Silja lifi ekki í þeirri trú að tilraunir hennar til að sanna að Salka hafi sent Arnald frá sér í stað 458
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.