Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 18

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 18
Tímarit Máls og menningar vera farinn að sækja þangað niður eftir svona ungur? Hættan var of mikil til þess að afi gæti sætt sig við þá tilhugsun. Hann mundi að hamrarnir fyrir ofan hesthúsið voru engu síður freistandi fyrir ungan dreng. Þar flugu krummar upp undir brúnunum og í urðinni var hægt að fylla vasana af gljásteinum. Þangað heyrði enginn þó kallað væri að heiman. Afi tvísté. Ætli hann hefði sig ekki alla leið þótt það væri dálítið bratt? Gatan lá í hlykkjum upp túnið. Afi reyndi að setja stafinn dálítið fram fyrir sig og gera hann á þann hátt að létta. En hvernig sem hann reyndi að flýta sér fylgdu fæturnir ekki huganum, þeir drógust áfram og leiðin virtist óendanlega löng. Hann varð sífellt óttaslegnari eftir því sem hann nálgaðist hesthúsið. Ef drengurinn væri þar ekki þá var vísast að hann hefði farið í pollinn. Loks hélst hann ekki lengur við á götunni, en sté út í grasið og stytti sér leið yfir túnið. A stóra steininum bak við hesthúsið sat drengurinn. Afa varð svo mikið um, að hann varð að stinga stafnum fast niður og halda sér í hann svo hann ryki ekki um koll. Það hvein í lungunum á honum og honum fannst hjartað vera í höfðinu á sér og slá þar af öllum mætti. Drengurinn leit upp og ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum. Þarna stóð afi sem varla komst hjálparlaust út á varpann. Skyndilega varð honum ljóst hversvegna afi stóð þarna og varð niðurlútur. Afi jafnaði sig furðu fljótt og tyllti sér niður á steininn við hliðina á drengnum. Hann fálmaði eftir pontunni sinni, svo hann gæti hresst sig dálítið eftir gönguna. Það leyndi sér ekki að drengurinn var með ekka og þó langt væri síðan afi hafði grátið, þá vissi hann, að betra var að þurfa ekki mikið að segja þegar þannig stóð á. Réttast væri að hann hefði sjálfur orðið. Hann dró upp dropótta klútinn sinn og snýtti sér vel og rækilega. Það söng í nefinu á honum og þau hljóð ýttu ekki undir neinar skælur. „Við skulum labba niður eftir nafni minn, það getur slegið að okkur við að sitja svona,“ sagði hann og rétti drengnum höndina. Um leið tók hann eftir, að hönd drengsins var lokuð. Máske var eitthvað leyndarmál í þessum litla hnefa — hugsaði afi, og rétti fram hina höndina. Hann hummaði og ræskti sig meðan hann hugsaði sig um hvað hann ætti helst að segja. Nú hafði hann aftur fundið öryggi 488
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.