Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 35
Góðir lesendur og góðir höfundar þessum fyrirlestrum. Sannleikurinn er sá að stórkostlegar skáldsögur eru stórkostlegar ævintýrasögur. Rúm og tími, litbrigði árstíðanna, hræringar hugans og vöðvanna, allt eru þetta fyrirbæri sem snilldarhöfundar líta ekki á sem hefðbundnar hug- myndir sem hægt sé að fá að láni í almenningsbókasafni opinberra sanninda, heldur sem röð einstæðra undrunarefna sem meistarar listanna hafa lært að tjá hver á sinn einstaka hátt. Minniháttar listamönnum er látið eftir að sjá um að gera hið hversdagslega skrautlegt. Þeir hafa ekki fyrir því að finna upp heiminn að nýju heldur reyna þeir að kreista það besta sem þeir geta út úr gefinni skipan hlutanna og hefðbundnum skáldsagnamynstrum. Þær margvíslegu blöndur sem minniháttar rithöfundar geta hrist saman innan þessara skýrt ákvörðuðu marka geta veitt saklausa skemmtun um stundar- sakir, vegna þess að það gleður lítilsiglda lesendur að bera kennsl á eigin hugmyndir íklæddar skemmtilegum dulargervum. En raunverulegur rithöf- undur, af þeirri gerðinni sem þeytir plánetum um geiminn og mótar mann í svefni og krukkar svo í ákafa í rif sofandans, þessháttar höfundur gengur ekki að neinum settum reglum, hann verður að smíða sér þær sjálfur. Ritlistin er skelfing óþarft fyrirtæki ef hún felur ekki fyrst og fremst í sér þá list að sjá heiminn sem mögulegt yrkisefni í skáldskap. Efniviður þessa heims getur verið öldungis áþreifanlegur, en hann á sér alls enga tilvist sem viðurkennd heild; hann er óskapnaður og við þennan óskapnað segir höfundurinn „af stað“ og leyfir þessum heimi að bregða á leik. Svo eru sjálfar frumeindir hans endurskipulagðar, ekki einungis ytri og sýnilegir hlutar hans. Höfundurinn er fyrstur manna til að kortleggja hann og gefa náttúrufyrirbærum hans nöfn. Vatnið milli trjánna þarna skal heita Opal- vatn eða, sem er listrænna, Uppþvottavatn. Þetta mistur er fjall — og það fjall verður að klífa. Upp veglausa hlíðina klifrar snillingurinn og þegar komið er upp á tindinn, hvern haldið þið þá hann hitti? Móðan og alsælan lesandann, og þeir fallast í faðma á staðnum og eru tengdir saman að eilífu, ef bókin varir að eilífu. Kvöld eitt var ég staddur í fyrirlestraferð í fjarlægum sveitaskóla og stakk þá upp á spurningaleik. Eg lagði fram tíu skilgreiningar á lesanda og af þessum tíu áttu nemendurnir að velja fjórar sem samanlagðar mundu skapa góðan lesanda. Eg er búinn að týna listanum, en eftir því sem ég man best var hann á þessa leið: Veljið fjögur svör við spurningunni: Hvað þarf lesandi að vera til að hann sé góður lesandi? 1. Hann þarf að vera í bókaklúbbi. 2. Hann þarf að samsama sig hetju bókarinnar. 3. Hann þarf að einbeita sér að félags- og efnahagslegu hliðinni. 3 TMM 505
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.