Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 84
Keld Jorgensen
Er víst að 7. áratugurinn
sé liðinn?
Um einstakling og sögu í Fótboltaengli Hans-Jorgen Nielsens
Inngangur
Fótboltaengillinn eftir H. J. Nielsen kom út í Danmörku í árslok 1979. A
árunum 1977—1980 voru endurlit, uppgjör og mat á stöðunni algeng í
blöðum, tímaritum og bókmenntum þar í landi eins og víða annars staðar.
1977 voru 60 ár liðin frá októberbyltingunni; 1978 voru tíu ár liðin frá því
magnþrungna ári 1968; 1980 lauk enn einum áratug. Hvað hafði gerst?
Hvert hefur leið okkar legið? Hvar stöndum við nú?
Það skipti vinstri vænginn einstaklega miklu máli að meta pólitíska stöðu
sína og hún var rædd með hliðsjón af kreppu vinstri manna, — atkvæðaleys-
inu. Auðvitað flæktust miklu fleiri inn í þetta uppgjör enda hafa glaðhlakka-
legar hugmyndir 7. áratugarins teygt sig langt út fyrir vinstri vænginn.
Nú orðið er ’68 þjóðsaga. Það er ómögulegt að benda á ákveðna atburði
eða menn og segja: Þeir voru æskulýðsuppreisnin. Ættu það þá t.d. að vera
aðgerðirnar gegn alþjóðabankanum, gegn heimsvaldastefnu Bandaríkja-
manna í Víetnam eða háskólatökurnar? Gætu það verið Bítlarnir, Herbert
Marcuse, Bob Dylan eða Pink Floyd? Eða kannski rokkararnir, hipparnir,
flippararnir eða djönkararnir? Þannig mætti lengi telja. Allt eru þetta
vissulega liðir í því sem við erum orðin vön að kalla æskulýðsuppreisnina.
Við erum búin að fylla eyðurnar í myndinni af því sem gerðist þá, — það er
orðið að þjóðsögu.
Fótboltaengillinn er tilraun til þess að ná utan um þróun þessara ára.
Hann er óvenju flókin skáldsaga. Sú greining sem hér fer á eftir beinist fyrst
og fremst að meginþema hans: Litlu sögunni andspænis stóru sögunni, —
einstaklingnum andspænis mannkynssögunni. Einnig verður rætt um sjálfs-
mynd karlmannsins sem er viðamikið minni í Fótboltaenglinum.
X
554