Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 92

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 92
Tímarit Máls og menningar Það eru þekkt varnarviðbrögð að laga sig að viðbrögðum umhverfisins við persónuleikanum og þessi setning er einfaldur snúningur á: „Eg er yndislegur og þú elskar mig, þess vegna er ég helmingi yndislegri.“ Kvennahreyfingin hefur vissulega gefið þessum snúningi undir fótinn. Karlmaðurinn og andhetjan hefur beinlínis tekið gagnrýnina til sín. Aður hefur verið minnst á annan klofning; þann sem er á milli þeirra Franke og Frandse. Auðvitað getur það virst vera gamla bilið á milli tilfinninga og skynsemi, líkama og höfuðs. Engu að síður verður smám saman ljóst að það er menntamaðurinn Frandse sem fellir þessa andstæðu inn í FF, og það athæfi hans er í takt við þann skilning menntaðra vinstri manna að hjá þeim sjálfum séu tilfinningarnar slitnar úr öllu samhengi en ósnortnar hjá verkalýðnum. Þess vegna væri frekar ástæða til að tala um að báðir breyttu tilfinningalífi sínu og mótuðu úr því árásargirni og metnað, — auðvitað í von um að þá rætist draumurinn um yfirráð sem samfélagsað- hæfing þeirra er grundvölluð á. Það sem hér er verið að tala um í tengslum við sjálfsmynd karlmannsins í Fótboltaenglinum má ef til vill draga saman í eina spurningu, sem er líka knýjandi spurning um kvennahreyfinguna að ekki sé nú talað um hreyfingar homma og lesbía: Hve miklu máli skiptir kynferðið í frelsun manns? Einnig mætti spyrja hvernig á því stendur að Frandse þroskast, að honum er í raun og veru mögulegt að leiðrétta það sem skrifað hefur verið á töflu persónuleikans. Því er erfitt að svara vegna þess að atburðirnir sem lýst er, litla ævisagan hans Frandses, gerast fyrir ritunartíma sögunnar. Dagbók Frandses er jafnframt stíluð til Alexanders og verður þess vegna að nokkurs konar erfðaskrá kynslóðarinnar. Um leið verður Alexander nokkurs konar fulltrúi þeirra sem á eftir koma og lesa verkið. Viðhorf hans verður viðhorf þeirra. Þar að auki er Frandse, faðir Alexanders, auðvitað að halda sínum draumum og metnaði að syninum í von um að Alexander geri þá að veruleika. Majken verður sams konar trygging fyrir sjálfsmynd Frandses og á sinn þátt í því að hann fellur ekki saman. Samband þeirra verður Frandse reynsla sem var ómöguleg með Katrínu: Hjá Majken fær hann viðurkenningu og ást sem er þroskandi, öfugt við kröfu Katrínar um skilyrðislausa uppgjöf. Aðalatriðið í afstöðu Frandses til Alexanders og Majken er að hann ber aftur kennsl á sjálfan sig. I sambandi þeirra verður eðlileg fjarlægð á milli þess æskilega og þess sem er og við lok bókarinnar er hann tilbúinn til að taka virkan þátt í samskiptum við þau tvö. Sé því slegið föstu að lágmarksþekking á sjálfum sér skipti höfuðmáli í sjálfsmynd Frandses, verður einnig mögulegt að útskýra dularfyllsta atriðið í bókinni: Frelsandi spretthlaup Frandses. A einum af reglubundnu sprett- 562
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.