Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 108
Tímarit Máls og menningar er reiðubúið að hverfa eins langt aftur og þarf til að sækja það sem það þráir: Þú dokar við gluggann og dreymir innar, fjær. — í þeirri vissu að horfin gleði sé lífs þarna einhvers staðar og hún verði fundin. Fortíðarupphafning og eftirsjá and- stætt nútímavandræðum kom fram í „Rúnaristu", „Fuglamáli“ og „Dísinni“. Þar eru andstæður magnaðar beint með nútíð og þátíð í forminu. I þessum Ijóð- um mátti líka sjá fortíðaráhugann birtast í þeirri aðferð sem Þorsteinn frá Hamri hefur löngum gert að sinni, að leita til fornrar þjóðmenningar í ýmsum tilbrigð- um við vísanir, tilhöfðanir, tilvitnanir og efnisöflun. Þetta er eitt gleggsta einkenni bókarinnar, síst minna áberandi nú en áður og eindregnari þjóðlegheitin þar sem Þorsteinn benti áður jafnt út um heiminn. Hér hittir lesandi einkum fyrir eitt og annað úr eddukvæðum, fornaldarsögum, þjóðsögum og þjóðtrú — og Sturlungu þar sem lagðar eru nýjar áherslur og athygli lesandans beint þannig að minnir á viðsnúningsljóð á borð við „Skarphéðin í brennunni" Steins og „Skassið á háskastund" Vil- borgar en öllu varfærnislegar. Orð eru lögð í munn Sighvati Sturlusyni gangandi til móts við dauða sinn í „Or- lygsstöðum“ (17): Eg vildi geta mundað fjöður af fugli, gleymmérei eða klófífu framaní Kolbein. Menn halda mig vígreifan, hafi ég öxina Stjörnu. Hitt, að ég dángla með skaftinu sjá þeir eigi . . . Þorsteinn frá Hamri hefur lengi kunn- að að nýta sér ýmsa hefðbundna formþætti í skáldskap sínum, beygja þá að vilja sínum og ætlun að lyst. Ég hygg þó að fortíðarlitið í Spjótalögum á spegil megi m.a. marka af því hve óvenju djarf- tækur Þorsteinn er þar til skáld- skaparbragða gömul ljóðhefðarinnar. Það úir og grúir af ljóðstöfum, rími og ljúfri hrynjandi — allt frá frjálslegustu stuðlasetningu til hins hefðbundnasta kveðskapar — eins og reyndar sést á mörgum tilfærðum dæmum og óþarft er að sýna sérstaklega. Kannski má einnig á þennan hátt reyna að skapa það jafnvægi og rólegu lífshrynjandi sem mönnum er holl og eðlileg en er svo afar sjaldgæf í samfélagi þeirra. — Og skyldi sú sára fátækt ekki líka eiga sinn þátt í að fleiri nýleg íslensk skáldverk en Spjótalög á spegil einkennast af fortíðarliti af ein- hverju tagi? Það fer svo eftir samhengi og áherslum hvort menn vilja sjá í því manninn í leit að sjálfum sér, afturhvarf, flótta eða eitthvað enn annað. Ekki aðeins er fortíðin bjartari en nútíðin í ljóðum Spjótalaga á spegil, þar er líka meira gert úr draumi en baráttu. Nútíð og barátta eru báðar úr sívið- blasandi veruleikanum og í báðum til- vikum er það þá hann sem stendur sig ekki. Þegar létt er yfir ljóðunum hefur draumurinn aftur á móti oft verið að verki - eins og fortíðin. Þannig var það t-d. í „Lífi I“, „Nótt“ og „Fjær“. Síðasta ljóð bókarinnar, „Stef“ (45), er líka fullt af fisi og fantasíu vegna draumsins sem er trúandi til alls: Draumasmiðurinn dýri býr í steini, 578
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.