Valsblaðið - 01.05.2015, Page 59

Valsblaðið - 01.05.2015, Page 59
Valsblaðið 2015 59 Starfið er margt grasinu og innanhúss, fengið kaffi og notið þess að dvelja að Hlíðarenda.“ Er innanríkisráðherra að rústa fram­ tíð Vals með einu pennastriki, með því að neita að loka varaflugbrautinni? „Það er grátlegt að horfa upp á þá at- burðarás sem hefur átt sér stað. Við lend- um í klemmu vegna einhvers stjórnmála- legs vafstur eða samskiptaleysis, eða pólitískra átaka. Það er bæði leiðinlegt og erfitt. Þessi ákvörðun mun tefja fyrir allri uppbyggingu og var töfin næg fyrir. Hvort töfin verður mánuður, tveir eða tvö ár á eftir að koma í ljós. Þetta kemur á versta tíma þegar framkvæmdir eru byrjaðar og margt komið í vinnslu. Ríki og borg eiga að geta náð saman um þessi mál. Ég hef reyndar passað upp á það að Knattspyrnufélagið Valur sé ekki að taka þátt í neinum deilum um flugvöllinn, sem er kjarni málsins. Þetta er mál borg- arinnar og ríkisins. Við höldum áfram okkar starfi og vonumst eftir farsælli lausn sem fyrst.“ félagsins og þungaviktarmenn í starfi þess áratugum saman. Ætli pabbi Björns sé enn að reyna að hafa áhrif á bak við tjöldin? „Ef pabbi er að reyna að stjórna mér verð ég ekki var við það. Ég er svo vanur að vinna í þannig umhverfi að það er sí- fellt verið að reyna að hafa áhrif á mig að kannski er ég orðinn ónæmur fyrir slíku. Við pabbi erum ekki sammála um allt í kringum Val. Ef hann hefði fengið að ráða hefðum við aldrei lagt gervigras á keppnisvöllinn en ég held samt að hann sjái ljósið núna. En pabbi er sannarlega með heilbrigt Valsblóð í æðum og fé- lagið er ávallt í fyrsta sæti hjá honum.“ Á karfan í Val sér viðreisnar von? „Það vona ég svo sannarlega. Körfu- bolti í Reykjavík hefur almennt átt frekar erfitt uppdráttar því það er mikil sam- keppni um iðkendur. Ég hef trú á því að karfan hjá Val sé að ná sér á strik og að allt liggi hér með upp á við. Það er lykil- atriði að halda uppi öflugu uppbygginga- starfi í yngri flokkunum. Deildin er sú langyngsta hjá Val, stofnuð upp úr 1970 og var þá aðeins um meistaraflokk og 2. flokk að ræða. Slíkt er ekki auðvelt og þetta hefur gengið hægt og sígandi. Sterkur bakgrunnur skiptir gríðarlega miklu máli. Það er ákveðinn styrkleiki af körfunni, til að mynda félagslegur og svo er ágætt að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni. Öllum iðkendum fylgja öflugir foreldrar og það er svo margt sem spilar inn í sem skiptir félagið máli.“ Hver hefur reynsla þín verið á fyrstu tveimur árunum sem formaður Vals? „Þetta er allt öðruvísi en ég bjóst við. Forsendurnar voru ólíkar miðað við það sem mér var sagt að þær væru. Ég bjóst svo sem hálfpartinn við því en þetta var töluvert þyngra og það er yfirleitt þann- ig. Maður þarf að hafa smá klikkun til að hella sér í formennsku í stóru félagi. Álagið er misjafnt en starfsfólkið sér um daglegan rekstur. Það getur verið erf- itt að láta enda ná saman og samtímis halda úti öflugu uppbyggingarstarfi. Það þarf að rúlla miklu á sama tíma og margt að smella þannig að það segir sig sjálft að þetta getur verið töluvert flókið. Margir Valsmenn leggja hönd á plóginn með margvíslegum hætti og fyrrum for- menn eru ótrúlega öflugir í allskyns mál- um, sumum mjög erfiðum, t.d. gagnvart Reykjavíkurbort, gagnvart Valsmönnum hf. og svo mætti lengi telja.“ Sumir vilja meina að styrkja þurfi innviðina, félagsstarfið, Valshjartað. „Það er ekkert einhlítt svar við þessu. Þjóðfélagið og öll umgjörð barna, foreldra og stuðningsmanna tekur sífelldum breyt- ingum. Það er svo margt sem freistar og fjölþætt afþreying í boði út um allt, ekki síst á netinu. Við lifum öll lífinu á mis- munandi hátt að það er alls ekki sambæri- legt að bera saman gamla og nýja tímann. Ef ég hefði séð eitthvað að Hlíðarenda, á þessum tveimur árum, sem mætti gera betur væri ég án efa búinn að kippa því í liðinn. Dropinn holar steininn og allt utan- umhald skiptir máli. Of miklar sviptingar í öllu eru ekki góðar þegar til lengri tíma er litið. Á síðustu 2–3 árum hefur verið unnið mjög gott starf í barna- og ung- lingaráðinu sem hefur fengið ákveðna stöðu innan félagsins og mér sýnist það vera að skila sér á annan hátt en áður. Þá mun Lollastúka spila stærra hlut- verk fljótlega af því að gervigrasið verð- ur í mikilli notkun. Þaðan eiga foreldrar að geta horft á börnin á æfingu á gervi- Valsarafjölskyldan Zoëga. Frá vinstri. Hjónin Jón Gunnar Zoëga og Guðrún Björns- dóttir ásamt sonum sínum, Birni Zoëga, Gunnari Zoëga og Sveini Zoëga á aðalfundi Vals 2014 þegar Björn Zoëga var kosinn formaður Vals. Mynd Þorsteinn Ólafs. Jóhannes Már Marteinsson sjúkraþjálfari og Björn Zoëga formaður Vals á Laugar- dalsvelli að loknum bikarsigrinum á KR í sumar. Mynd Þorsteinn Ólafs.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.