Valsblaðið - 01.05.2015, Page 104
104 Valsblaðið 2015
Starfið er margt
„gömlu“. Ástrós Anna Bender unglinga-
landsliðsmarkvörður kom frá HK líkt og
Gerður Arinbjarnar og Ragnhildur Edda
Þórðardóttir. Elín Helga Lárusdóttir kom
síðan frá Gróttu. Allir þessir leikmenn
styrkja félagið í nútíð og framtíð, hlut-
verk þeirra hefur verið vaxandi og verður
gaman að fylgjast með þeim. Auk þeirra
leikmanna sem taldir hafa verið upp eru
Bryndís Wöhler, Morgan Marie Þorkels-
dóttir, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir og
Sólveig Lóa Höskuldsdóttir algjörir lyk-
illeikmenn hjá liðinu þrátt fyrir ungan
aldur. Ásamt því að þjálfa meistaraflokk
er Alfreð einnig þjálfari 3. flokks, en
margir leikmenn þaðan æfa og spila með
meistaraflokki líkt og Alexandra Diljá
Birkisdóttir, Kristín Arndís Ólafsdóttir,
Ragnhildur Hjartardóttir, Margrét Vign-
isdóttir og Tanja Geirmundsdóttir.
Þegar þetta er skrifað er Valur í 3. sæti
deildarinnar eftir 10 sigurleiki í 12 um-
ferðum. Þær verða þar með þátttakendur
í deildarbikarnum milli jóla og nýárs.
Spilamennska liðsins hefur verið vax-
andi, breiddin er sífellt að aukast og ljóst
að liðið er á réttri leið.
Meistaraflokkur karla
Síðastliðið tímabil hjá meistaraflokki
karla einkenndist af frábærri spila-
mennsku framan af tímabili, Deildar-
meistaratitli, breytingum í þjálfaramálum
og vonbrigðum í baráttunni um stóru titl-
ana tvo.
Liðið hafði þrjá aðalþjálfara tímabilið
2014–2015, sem er auðvitað ekki æski-
legt, en var erfitt fyrir stjórn að ráða við.
Ólafur Stefánsson þurfti frá að hverfa í
upphafi þessa annars tímabils vegna
anna í öðrum störfum. Jón Kristjánsson
kom inn í þjálfarateymið ásamt Óskari
Bjarna, en þurfti að hætta um áramótin
vegna annarra starfa og þá tók Óskar al-
farið við liðinu og Heimir Ríkarðsson
var honum til aðstoðar. Leikmenn létu
þessar sviptingar ekki á sig fá og spiluðu
mjög vel mest allt tímabilið.
Fyrri titill tímabilsins vannst í deildar-
bikarnum milli jóla og nýárs. Eftir góðan
sigur á FH í undanúrslitum var komið að
spennuþrungnum úrslitaleik við Aftur-
eldingu. Eftir tvær framlengingar þurfti
að grípa til vítakeppni sem okkar menn
unnu og fögnuðu gríðarlega.
Líkt og stelpurnar tryggðu strákarnir
sér sæti í stóru bikarhelginni í Laugar-
dalshöll. Sætið í undanúrslitum var
tryggt eftir þrjá útisigra gegn Selfossi,
KR og Akureyri. Það var full ástæða til
Deildarmeistarar Vals í handbolta karla 2015.
Ólafur Stefánsson tók fram
skóna að nýju og lék einn leik.