Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 23

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 23
21 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 nemenda sem verða fyrir einelti í rannsókn okkar segjast einnig leggja aðra í einelti. Þetta er talsvert hærra hlutfall en í öðrum rann- sóknum (Ross, 1996). Hegðun þessara barna, sem bæði eru þolendur og gerendur, veldur oft spennu og pirringi umhverfis þau (Olweus, 1993a; Schwartz o.fl., 2001). Þau sýna oft takmarkaða félagslega aðlögun (Nansel o.fl., 2001) og verða oft fyrir höfnun annarra barna (Warden og Mackinnon, 2003). Þess utan hafa þau tilhneigingu til að vera mjög ýg og sýna frávik eða skort á skilningi í félagslegum aðstæðum. Þau eiga oftar við hegðunarvandamál að stríða og taugaþroskaraskanir eins og athyglisbrest með ofvirkni (Attention-Deficit/- Hyperactivity Disorder – ADHD) og náms- örðugleika. Rannsókn á börnum sem tóku lyf við athyglisbresti með ofvirkni leiddi í ljós að þessi börn voru mun líklegri en önnur til að vera bæði gerendur og þolendur eineltis (Unnever og Cornell, 2003). Þörf er á frekari rannsóknum til að skýra orsakir þessa flókna mynsturs. Þau börn sem áttu stjúpforeldra mátu gæði samskipta við þau mun verri en börn mátu samskipti sín við foreldra. Hjá þolendum eineltis voru hlutfallslega fleiri sem mátu samskiptin við stjúpföður erfið en auðveld. Í hinum hópunum eru fleiri sem telja þau auðveld eða mjög auðveld. Samskipti við bæði mæður og stjúpmæður voru best hjá þeim sem ekki upplifa einelti. Þau gögn sem hér er byggt á geta ekki skorið úr um orsakasamband þessa mynsturs. Góð samskipti við foreldra og stjúpforeldra kunna að veita börnum ákveðna vörn gegn einelti, hugsanlega vegna þess að góð tengsl við foreldra geta þýtt auðveldari aðgang að traustum bandamönnum og góðum ráðgjöfum þegar einelti kemur fyrst upp. Hins vegar getur einelti einnig reynt mjög á sam- band foreldra og barna og þeir sem upplifa einelti geta upplifað foreldra sína sem van- máttuga gagnvart vandamálinu og því metið tengsl sín við þau lakari. Sú skoðun hefur verið sett fram að feður sem eru til staðar bæði líkamlega og tilfinningalega séu mikilvæg fyrirmynd sona sinna og kenni þeim samskipti við aðra karla, ákveðni og hvernig eigi að verja sig gegn einelti (Rigby, 2002). Olweus (1993b) komst að þeirri nið- urstöðu að karlkyns þolendur eineltis væru líklegri en aðrir til að eiga ofverndandi móður og fjarlægan og gagnrýninn föður. Rigby (1993) sýndi fram á að drengir sem yrðu fyrir einelti mætu samskipti sín við föður lakari en við móður en stúlkur sem yrðu fyrir einelti mætu samskipti sín við móður lakari. Þó að ekki sé hægt að draga eindregnar ályktanir út frá niðurstöðum okkar er ljóst að samskipti við föður eru best meðal þeirra barna sem tengjast á engan hátt einelti og þeirra sem bæði þola og beita einelti. Niðurstöður okkar virðast ekki styðja sérstaklega þá hugmynd að drengir sem verða fyrir einelti séu í lakara sambandi við feður sína en stúlkur í sömu sporum. Hvað stúlkurnar varðar sýna gögn okkar að gerendur en ekki þolendur meta samskipti sín við bæði mæður og stjúpmæður mun frekar erfið eða mjög erfið. Einnig kemur í ljós að stúlkur sem voru þolendur eineltis voru langlíklegastar til að meta samskipti sín við stjúpföður erfið eða mjög erfið (64,9%), en stelpur sem voru gerendur eineltis voru líklegastar til að meta samskipti sín við stjúpföður auðveld eða mjög auðveld (57,9%). Þar er á ferðinni mynstur sem vert væri að skoða frekar. Rannsóknir hafa sýnt að vinátta og einelti tengjast sterklega. Þannig hafa sumir gengið svo langt að telja þrjá þætti vinatengsla beinlínis geta varið börn fyrir einelti eða a.m.k. dregið úr afleiðingum þess. Þessir þættir eru fjöldi vina, félagsleg staða vinanna og staða barnsins innan vinahópsins (Boulton og Smith, 1994; Hodges o.fl., 1997). Boulton og félagar (1999) vildu einnig meina að það að eiga trúnaðarvin gæti verið verndandi gegn einelti. Þótt ómögulegt sé að draga ályktanir um orsakasambönd út frá rannsókn eins og okkar er alveg ljóst að þolendur eineltis, hvort sem þeir eru einnig gerendur eður ei, eru mun ólíklegri en aðrir til að eiga besta vin og ef þeir eiga slíkan að er vináttan lakari en meðal annarra barna. Hinsvegar er athyglisvert að sjá að gerendur eineltis eru líklegastir til að Einelti og samskipti við fjölskyldu og vini meðal 6., 8. og 10. bekkinga
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.