Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Qupperneq 142

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Qupperneq 142
140 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 temji sér vinnubrögð sem geri þeim kleift að rækta þennan þátt starfsins. Umhyggja felst í því að veita hverjum og einum þann stuðning sem hann þarfnast til að vaxa og dafna, umhyggja er mikilvægasti þáttur starfsins og snertir bæði börn og fullorðna. Börn kalla mismikið á athygli hins fullorðna, ekki má gera ráð fyrir að þó að barn uni sér vel þurfi það ekki á manni að halda. Noddings (2003) heldur því fram að allir þurfi að finna að fyrir þeim sé borin umhyggja en umhyggjan breytist eftir því sem einstaklingurinn eldist og þroskist. Allir þurfi umhyggju sem felst í jákvæðum viðbrögðum gagnvart þeim, hver og einn á rétt á að honum sé sýnd virðing eins og hann er. Í rýnihópi Fjalls kom fram að til þess að manni liði vel, hvort sem um væri að ræða barn eða fullorðinn, þyrfti hann að finna að það væri borin umhyggja fyrir honum, að hann skipti máli. Westmark (2002) álítur að umhyggjusemi hafi áhrif á alla í leikskólanum, bæði börn og fullorðna, það sýni sig m.a. í því að þar sem umhyggja er í hávegum höfð verði samskipti opnari og jákvæðari. Samskiptin einkennist þannig af viðurkenningu. Agi og rammi um starf leikskólans er sívinsælt umræðuefni hvar sem starfsfólk leikskóla kemur saman. Þar eru hugtökin agi og umhyggja gjarnan nátengd. Þetta sjónarhorn birtist í svörum sumra viðmælenda minna, sem telja umhyggju fyrir barninu felast í rammanum og reglunum sem gilda í leikskólanum og samfélaginu og því hvernig þeim er framfylgt. Þær telja það veita barni öryggi að þekkja mörkin og afleiðingar þess að fara út fyrir rammann. Fram kom að ef barn bryti reglu eða færi yfir gildandi mörk þyrfti að taka á því af festu, en skoða bæri brot og afleiðingar í samhengi. Hér er því ekki hafnað að rammi og reglur skipti miklu máli. Hins vegar má velta fyrir sér hvort þessi mikla áhersla á rammann og viðurlögin bendi ekki að einhverju leyti til vélrænna viðhorfa. Aðrir bentu á að barn sem upplifir umhyggju af hálfu leikskólakennarans hlýtur að treysta honum. Einnig kom fram að innan rammans þyrfti að vera ákveðinn sveigjanleiki. Það þýðir að ekki dugi að setja alla undir sama hatt, meta þurfi kröfur til barnanna út frá aðstæðum og út frá þeim sem í hlut á hverju sinni. Viðmælendur mínir telja að umhyggja á fyrstu árum barns sé undirstaða velgengni síðar meir, og hafi áhrif á tilfinninga- og félagsþroska barnsins síðar á ævinni og telja gildi hennar því ótvírætt. Þetta er í samræmi við það sem langtímarannsóknir, sem gerðar hafa verið, sýna, þ.e. að börn sem búa við skort á umhyggju á fyrstu árum ævi sinnar eiga erfiðara með að tengjast umhverfi sínu og læra í því og af því en þau sem búa við góða umönnun og njóta umhyggju (Shore, 1997). Umhyggja er talin vera einn af þeim grundvallarþáttum sem hafa áhrif á félagslegan, tilfinningalegan og vitrænan þroska barna (Manning-Morton og Thorp, 2003; Goldstein, 2002; Johannsson, 2001). Í ljósi þess ætti að gera umhyggju hátt undir höfði í leikskólastarfi. Samantekt Það kemur ekki á óvart að leikskólakennar- arnir sem rætt var við gera svipaðan greinarmun á hugtökunum umhyggja og umönnun og leikskólakennararnir Elva Önundardóttir o.fl. (2006), þ.e. að umhyggja sé gildi en umönnun framkvæmd. Umhyggja er viðhorf að mati leikskólakennaranna, það sé því viðhorfið og hugsunin að baki gjörðinni sem skiptir máli. Niðurstaðan er að ekki sé hægt að sinna starfinu í leikskólanum á faglega fullnægjandi hátt nema bera umhyggju fyrir hagsmunum barnanna; til þess þarf kennarinn að vera fær um að tengjast börnunum og reyna að setja sig í spor þeirra. Margt af því sem kom fram í viðtölunum og rýnihópunum fellur saman við skilgreiningar Noddings (2003, 2005) og Sroufe (1995) á umhyggju, þ.e. að umhyggja byggist á tengslum milli tveggja (þess sem veitir og þess sem þiggur), þar sem sinnt er bæði líkamlegum og andlegum þörfum af alúð og virðingu fyrir einstaklingnum. Að mati leikskólakennaranna felst umhyggja í því að setja börnum mörk í þeim tilgangi að veita þeim öryggi, hins vegar þurfi ramminn að Sigríður Síta Pétursdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.