Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Blaðsíða 60

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Blaðsíða 60
58 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 menntaskólum og haustið 1963 fékk hann námsorlof sem hann notaði til að kynna sér nýjar stefnur í Bandaríkjunum. Umræður hófust í Menntaskólanum í Reykjavík um alþjóðlega strauma breytinga á stærðfræðikennslu. Hugmyndir um breytingar snerust upphaflega um að búa nemendur betur en áður undir háskólanám og vörðuðu því menntaskólana og landsprófið mest í fyrstu. Í ársbyrjun 1966 ritaði Halldór Elíasson grein í Menntamál þar sem segir m.a.: „Í núverandi námsbókum er nokkuð mikið um slæmar reikningslistir. ... Hlutfallareikningurinn er bein móðgun við heilbrigða skynsemi í því formi, sem hann er kenndur. ... Hins vegar tryggir notkun þríliðunnar svo til, að nemendur hafa ekki hugmynd um, hvað þeir eru að gera og hafa enga aðstöðu til að dæma um, hvort raunverulega sé rétt að nota þríliðu. ... Það þarf alltaf einhverja þekkingu til að geta reiknað dæmi, þekkingu á þeim hugtökum, sem þar koma fyrir. Það, sem hér vantar, er kennsla í meðferð og notkun hugtaka. Til dæmis hugtök eins og verð, lengd, vextir o.frv. á að kenna að nota í reikningi. Með því er hægt að losna við þríliðuna og komast að kjarna þess, sem felst í hugtakinu hlutfallareikningur.“ (Halldór Elíasson, 1966, bls. 96–97). Þríliða hefur ekki verið nefnd í íslenskum kennslubókum síðan enda var mikilla breytinga skammt að bíða. Halldór, sem kenndi þá við Menntaskólann í Reykjavík og túlkaði ef til vill umræður á kennarastofu Menntaskólans, sagði líka: „Ég tel, að ekki sé rétt, að nemendur séu prófaðir í námsefni, sem engin ástæða er til að þeir kunni. Ef þetta sjónarmið væri viðurkennt, þá væru t.d. próf í lesnum dæmum ekki tíðkuð. Það er algjörlega einskis virði að nemendur læri þessi dæmi utan að. Lakari nemendur freistast einmitt til þess, en ættu að verja tíma sínum á skynsamlegri hátt. Önnur ástæða til þess, að slík próf eru óæskileg, er sú, að þau hafa mjög neikvæð áhrif á kennsluaðferðir. Landsprófskennslan hefur verið átakanlegt dæmi um þetta.“ (Halldór Elíasson, 1966, bls. 97–98). Steinþór Guðmundsson var umsjónarmaður landsprófsins í stærðfræði árin 1946–1962 en Björn Bjarnason, kennari við Menntaskólann í Reykjavík, tók þá við samningu stærðfræði- prófsins og umsjón. Árið 1966 var stærð- fræðiprófinu breytt og það var stytt. Að hluta til var það af hagkvæmnisástæðum. Áður höfðu verið tvö próf í ólesinni stærðfræði, samtals 4 ½ klst., og þriggja tíma próf í lesinni stærðfræði var haldreipi margra. Þegar prófþegum fjölgaði verulega um miðjan sjöunda áratuginn varð yfirferð á öllum úrlausnum á öllu landinu einum manni ofviða, en nefndarmenn voru prófdómarar í Reykjavík og þeir endurmátu úrlausnir utan Reykjavíkur (Bjarni Vilhjálms- son, 1952). Meginbreytingin 1966 var þó sú að lesin stærðfræði var lögð niður og í stað hennar komu stutt dæmi um grundvallaratriði í algebru, sem auðvelt var að meta. Áður höfðu verið sex til sjö dæmi í hverjum prófhluta, löng dæmi og samsett, oft snilldarlega samin, en flókin í mati. Þau voru þó metin með sérstökum hætti að sögn Haraldar Steinþórssonar (2003), sonar Steinþórs Guðmundssonar. Þannig voru fyrstu skref metin tiltölulega hátt, en matið varð strangara eftir því sem lengra varð komist með hvert dæmi. Prófið þróaðist síðan út í safn aragrúa smáatriða, bæði í stærðfræði og öðrum náms- greinum (Matthías Jónasson, 1968). Álitamál er hvort sú þróun hafi orðið til að bæta viðhorf kennara og nemenda til stærðfræðinnar. En þá var hin svonefnda nýja stærðfræði með mengjafræði einnig að koma til sögunnar. Var fyrst gerð tilraun með námsefni af því tagi til landsprófs í nokkrum skólum veturinn 1966–1967. Drög að námskrá landsprófsdeilda gagnfræðaskólanna voru loks tekin saman árið 1968 (Andri Ísaksson (ritstjóri), 1968) að tilhlutan Skólarannsóknadeildar Mennta- málaráðuneytisins sem var sett á stofn sama ár. Má ætla að umsjónarmenn námsgreinanna hafi samið hver sinn hluta, Björn Bjarnason í tilviki stærðfræðinnar. Var námskráin skref í þá átt að losa kennsluna úr viðjum einstakra námsbóka. Námskráin í stærðfræði bar sterk einkenni nýju alþjóðlegu stefnunnar í Kristín Bjarnadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.