Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 29

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 29
nemanda með alvarlega leshömlun kennt að greina málhljóð og lesa1 með beinum fyrirmælum2 og hnitmiðaðri færniþjálfun3 Guðríður Adda Ragnarsdóttir Atferlisgreiningu og kennsluráðgjöf Ellefu ára gamalli stúlku sem greind var með alvarlega leshömlun, dyslexíu, var kennt að lesa með samtengdri hljóðaaðferð eftir ýmsum skynjunar- og verkleiðum. Beitt var kennslutækni beinna fyrirmæla (DI) við frumkennslu og hnitmiðaðrar færniþjálfunar (PT) við hröðunarnám. Hraðflettispil (SAFMEDS) voru notuð til að þjálfa aðgreiningu. Færni stúlkunnar í að umskrá málhljóð í bókstafi og bókstafi í málhljóð ásamt hljóðblöndun var kennd og þjálfuð rækilega í 60 klukkustundir. Lestrarhraðinn var skráður jafnóðum sem tíðni á stöðluð hröðunarkort. Gögnin sýna að rækileg hljóðræn þjálfun skilar sér í færni við samsett verkefni − lestur orða og samfelldra texta sem byggjast á sömu grundvallaratriðum, þ.e. málhljóðum og sambandi þeirra við bókstafi. Niðurstöðurnar eru í góðu samræmi við fyrri niðurstöður höfundar og annarra sem beita sömu kennslutækni. Þær eru ræddar í samhengi við nýlegar heilarannsóknir sem gerðar hafa verið með starfrænni segulómun (fMRI), og sýna að jafnframt því að auka lesfærni leshamlaðra breytir rækileg hljóðræn þjálfun gerð og virkni lessvæða í heila þeirra. Fjallað verður um lestrarkennslu ellefu ára gamallar stúlku sem var illa læs og hafði fengið greiningu um alvarlega leshömlun – dyslexíu4. Dyslexía virðist liggja í ættum og eru ýmsar vísbendingar um að hún sé ásköpuð (Gabrieli, 2009). Nýjar rannsóknir með starfrænni segulómun (e. functional magnetic resonance imaging, fMRI) sýna að hægt er að greina formgerð tiltekinna svæða í heila sem tengjast lestri, og breytingar á henni. Þær sýna einnig að önnur svæði virkjast hjá leshömluðum en þeim sem eru það ekki, og að hægt er að greina hvaða svæði eru virkust þegar einstaklingurinn les. Síðast en ekki síst sýna þessar rannsóknir 27Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009, bls. 27–50 Hagnýtt gildi: Greinin er framlag höfundar til þess að kennsla þróist í átt að þroskuðum vísindum með samræmdum viðmiðum og staðfestingu almennra lögmála. Kennslutækni þar sem beitt er beinum fyrirmælum og hnitmiðaði færniþjálfun er raunvíst dæmi um stjórn á frumbreytu – kennslu, og áhrif hennar á fylgibreytu – námsárangur. Gengið er út frá þeirri forsendu að þeir sem bera ábyrgð á menntun kennara og stefnumótun í menntamálum byggi ákvarðanir sínar á raunprófuðum gögnum. 1 Kennslan var þjónusta veitt samkvæmt beiðni foreldra nemandans. Hún var greidd af þeim og viðkomandi sveitarfélagi. Höfundur þakkar nemanda og foreldrum nána og góða samvinnu og bæjarstjóra áhuga og skilning. 2 Direct Instruction hefur verið þýtt á íslensku sem bein fyrirmæli eða bein kennsla. Hér verður talað um bein fyrirmæli, þótt höfundur hallist að því að hvorug þýðingin nái merkingunni nægilega vel. Spurning er hvort víkja eigi frá bókstaflegri þýðingu og tala þess í stað um stýrða kennslu. 3 Borghildur Sigurðardóttir, kennari í Réttarholtsskóla, benti á orðið „hröðunarnám“ í merkingunni „hnitmiðuð færniþjálfun“. Höfundur þakkar munnlega ábendingu og mun nota bæði hugtökin eftir samhengi, ásamt Precision Teaching og PT, þegar við á. 4 Hugtökin alvarleg leshömlun og dyslexía verða notuð jöfnum höndum í greininni. Ekki verður fjallað um nánari skilgreiningar eða einkenni undirflokka hennar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.