Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Blaðsíða 133

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Blaðsíða 133
131 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 sáttur nema hann fengi að njóta þess sem hugur hans stæði til. Hver og einn verði að vera trúr sjálfum sér og fá tækifæri til að þroska hæfileika sína. Allir þarfnist þess að vera sýnd umhyggja, að fá jákvæð viðbrögð við gerðum sínum (Noddings, 2002). Sroufe (1995) telur, líkt og Noddings, umhyggju byggjast á nánum tengslum fullorðins og barns. Sroufe byggir niðurstöður sínar á langtímarannsóknum, sem sýna fram á að tengslin sem myndast á fyrstu æviárum einstaklingsins eru grunnurinn að tilfinningaþroska hans og sjálfsmynd. Niðurstöður hans sýna að sú umhyggja sem einstaklingurinn nýtur fyrstu æviárin, stuðningur og trú hins fullorðna á getu barnsins, er mikilvæg fyrir það sem síðar kemur. Nýleg langtímarannsókn á áhrifum leik- skóladvalar á vitrænan og félagslegan þroska barna sýnir að það sem skiptir máli er gæði umhyggjunnar og samskiptanna (Bornstein, Hahn, Gist og Haynes, 2006). Því er haldið fram að það sem barn lærir fyrir þriggja ára aldur, hvort sem það man það eða ekki, hafi áhrif á þroska þess síðar. Félagsþroski byrji þannig að byggjast upp fyrir þriggja ára aldur. Því sé fagleg færni leikskólakennara í að aðstoða börn við að læra af upplifunum sínum mikilvæg (Manning-Morton og Thorp, 2003; Goldschmied og Jackson, 2004; Johannson, 2001). Sigríður Halldórsdóttir (1989) telur að í faglegri umhyggju felist fagleg færni og hlýja þar sem virðing fyrir skjólstæðingnum skipti höfuðmáli. Þótt Sigríður sé að fjalla um umhyggju út frá sjónarhorni sjúklinga á skilgreining hennar alveg jafnvel við innan skólans þar sem virðing fyrir einstaklingnum ætti að vera í forgrunni. Stig Broström (2003) telur umhyggju fela í sér athafnir, tilfinningar, hugsun og viðhorf. Í sama streng tekur Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (2007) sem telur að í umhyggju fléttist saman þekking, viðhorf, tilfinningar og leikni. Sigrún Aðalbjarnardóttir (2007) fjallar um umhyggju sem gildi og umhyggjusemi sem dygð. Samkvæmt því er umhyggja viðhorf en umhyggjusemi eiginleiki sem birtast í orðum og athöfnum fólks. Í umhyggju felst að vera annt um „líðan, velferð og framtíðarhag“ annarra (bls. 75). Umhyggja kennara getur birst annars vegar í því að kennari sýni barni „hlýju og hjálpsemi“ þ.e. að honum sé annt um að barninu líði vel. Hins vegar getur umhyggja kennarans fyrir velferð barnsins birst sem vilji hans til að „efla margvíslegan þroska“ barnsins og láta það „finna til sín“ (bls. 79). Hugmyndir Sigrúnar eru samhljóða hugmyndum Noddings (2002) og Sroufe (1995), og undirstrika mikilvægi umhyggju fyrir félags- og tilfinningaþroska. Að mati Elvu Önundardóttur o.fl. (2006) er hugtakið umhyggja regnhlífarhugtak sem nær yfir alla þætti í starfi leikskóla þar sem leikskólakennarar leitast við að skapa umhyggjusamt og þroskavænlegt námsum- hverfi og fjölbreytt námstækifæri. Þær líta á umönnun sem undirhugtak umhyggju í þeim tilvikum þar sem fullorðinn annast barn sem hann er í nánum tengslum við. Þær virðast ekki gera þann greinarmun að umhyggja sé gildi en umönnun tæknileg úrlausn. Umhyggja leikskólakennarans birtist m.a. í viðhorfi hans og sýn til barna og barnæsku. Umhyggjusamur leikskólakennari veitir hverju barni athygli og mætir þörfum þess, m.a. með það í huga að leiða það áfram í námi. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (2007) talar um tvenns konar birtingarmyndir umhyggjusama kennarans, annars vegar móðurlega umhyggju þar sem vinnubrögð kennarans einkennast af því að halda vel utan um skjólstæðinga sína og hins vegar prestlega umhyggju (e. pastoral care) sem felst í umhyggju fyrir sálinni og vilja til að hafa áhrif til góðs fyrir framtíð skjólstæðingsins. Hvort heldur sem er þá eru líklega flestir sammála því að umhyggja kennarans ræður miklu um það hvort og hvernig barnið nær að tileinka sér þekkingu og færni (Sroufe, 1995; Broström, 2003; Noddings, 2005; Smith, 2004). Sroufe (1995) álítur að umhyggjusöm samskipti barns og fullorðins séu forsenda þess að barn geti tileinkað sér nýjungar. Peter Westmark (2002) telur að umhyggja „Blítt bros og hlýtt faðmlag“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.