Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 35

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 35
33 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Nemanda með dyslexíu kennt að lesa með beinum fyrirmælum og hnitmiðaðri færniþjálfun hnitmiðaðrar færniþjálfunar liggur annars staðar en í vendisniðum. Hann er innbyggður í aðferðafræðilegum uppruna PT (Guðríður Adda Ragnarsdóttir, 2004; Vargas, 2003) í rannsóknum á hegðun dýra sem gerðar eru með tilraunum á rannsóknarstofum (Experimental behavior analysis). Þá aðferðafræði lagaði Lindsley (1972) að skólastofunni og kallaði Precision Teaching (Guðríður Adda Ragnars- dóttir, 2004, 2005, 2007). Frumrannsóknir í atferlisgreiningu sýna að hegðun lýtur tiltekinni reglufestu eins og annað í náttúrunni (Ferster og Skinner, 1957). Reglufestan er forsenda þess að hægt sé að spá fyrir um hegðunina við tilteknar, skilgreindar aðstæður (Skinner, 1957). Svo að það megi verða þarf viðfangsefnið að birtast sem merkjanlegar athafnir og skilgreinast með altækri (e. universal) mælieiningu sem ekki breytist eftir stað og stund. Í atferlisgreiningu eru það hinar virku athafnir – óperantarnir – (Skinner, 1938/1991) sem veljast úr hegðunar- streyminu vegna þeirra afleiðinga sem þær hafa og birtast aftur og aftur með aukinni tíðni á kostnað annarra athafna sem ekki verða fyrir valinu, ef svo má að orði komast, og lækka í tíðni við það (Skinner, 1981). Dæmi úr hröðunarnámi getur verið rétt svör á móti röngum. Hvenær tiltekin athöfn telst virk (e. operant/functional) er ekki vitað fyrr en það er prófað (an empirical question). Hin virka athöfn verður samt því aðeins greind með kerfisbundnum hætti að hægt sé að mæla hana með staðlaðri mælistiku sem breytist ekki með þeim breytingum sem verða á hegðuninni við íhlutunina. Því næmari sem mælistikan er, þeim mun nákvæmari mynd gefur hún af þeim breytingum sem væntanlega verða á hegðuninni. Tíðni er slík mælieining. Hún er altæk, næm og algild (e. absolute) (Johnston og Pennypacker, 1993; sjá einnig Guðríði Öddu Ragnarsdóttur, 2004). Sjálfur taldi Skinner (Evans, 1968) að auk þess að mæla hegðun í tíðni (e. rate of responding) hefði mælitækið – hlaðriti(e. cumulative recorder) – verið helsta framlag hans til vísindanna. Hlaðrit hans sýnir flæði hegðunar í rauntíma sem tíðni athafna frá einu augnabliki til annars. Í stað hins staðlaða hlaðrits Skinners höfum við staðlað hröðunarkort Lindsleys (1964) þar sem tímaupplausnin er einnig nákvæm, eða ein mínúta. Hröðunarkortið er alls staðar eins og leyfir ekki að kvarðar þess séu togaðir til eða gildum þeirra breytt eftir áherslum rannsakandans. Þess vegna er hægt með mikilli nákvæmni að sannreyna áreiðanleika og alhæfingargildi tiltekinnar kennslutækni með því að bera saman hröðunarkort. Þeir sem beita hnitmiðaðri færniþjálfun sýna á stöðluðu hröðunarkorti ítarleg gögn um framvindu náms, eða afmarkaðra dæma þess, sem fengin eru með nákvæmri greiningu á altækri mælieiningu sem mæld er með algildri mælistiku. Með rannsóknum Skinners fengu sálfræðin og kennslufræðin þannig samræmda mælieiningu, mælistiku og mælitæki (Barrett, 2002), sem Lindsley þróaði áfram fyrir kennslu og haldbærar rannsóknir á námi. Þar liggur aðferðafræðilegur styrkur hnitmiðaðrar færni- þjálfunar. Þegar rannsóknargögn eru metin, t.d. úr DI-PT kennslu, þarf fyrst og fremst að huga að mikilvægi þeirra fyrir þekkingarleitina, áreiðanleika þeirra og alhæfingargildi. Það verður best tryggt með endurteknum raunprófunum, beinum eða kerfisbundnum (Sidman, 1960). Eins og Sidman orðar það: „Whereas direct replication reconfirms what is already known, systematic replication may, in addition, yield new information about the phenomena in question“ (bls. 125, leturbreyting höfundar). Með því að greina kennslu- og námsferlið nákvæmlega er hægt að endurtaka kennsluna annars staðar, með nýjum nemendum, jafnvel öðrum kennurum, og fá úr því skorið hvort svipaðar niðurstöður birtast aftur. Með endurtekningunni safnast gögn sem leiða í (e. induce) almennar reglur um nám og kennslu. Greinin er nýtt innlegg í þróun þeirrar heildarmyndar að hægt verði að alhæfa og spá um samband tiltekinnar tækni (DI – PT) í kennslu og þjálfun nemenda sem af ýmsum ástæðum eru ólæsir (sjá einnig Guðríði Öddu Ragnarsdóttur, 2004, 2005).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.